Sarri orðaður við stjórastöðuna hjá Tottenham Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. apríl 2021 13:00 Verður Sarri á hliðarlínunni á Tottenham Hotspur-vellinum á næstu leiktíð? EPA-EFE/ROBERTO BREGANI Samkvæmt enska götublaðinu Daily Mail hefur Tottenham Hotspur heyrt í Maurizio Sarri, fyrrum þjálfara Chelsea, Juventus og Napoli. Gæti hann tekið við Lundúnaliðinu í sumar.
Tottenham rak José Mourinho í fyrradag og tilkynnti í gær að hinn 29 ára gamli Ryan Mason myndi stýra liðinu út tímabilið. Forráðamenn Lundúnaliðsins hafa nú þegar hafið leit að eftirmanni Mourinho og þó Mason fái traustið út þetta tímabil þá ætlar Tottenahm sér að ráða reynslumeiri þjálfara fyrir næstu leiktíð. Nafnið sem virðist hafa komið upp úr hattinum er Maurizio Sarri. Sá gerði garðinn frægan hjá Napoli áður en hann tók við Chelsea. Hann var þar aðeins í eina leiktíð, liðið endaði í 3. sæti úrvalsdeildarinnar, vann Evrópudeildina en tapaði í úrslitum deildarbikarsins. Þaðan fór hann til Juventus og vann Serie A á síðustu leiktíð. Er hann elsti þjálfari í sögu ítölsku úrvalsdeildarinnar til að hampa titlinum. Nú virðist sem hinn 62 ára gamli Sarri gæti verið á leið til Lundúna á nýjan leik. Tottenham er sem stendur í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og stefnir allt í að liðið komist ekki í Evrópukeppni. Það er því verk að vinna á Tottenham Hotspur-vellinum á næstu leiktíð og spurning hvort Sarri fái það verkefni að koma Tottenham á sama stall og þegar gekk hvað best undir Mauricio Pochettino.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Dagskráin í dag: Pílukast og Íslandsmeistarar Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Jafnt í stórleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Sjá meira