Einn þekktasti lögfræðingur Noregs myrtur í Osló Atli Ísleifsson skrifar 13. apríl 2021 07:43 Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um verknaðinn. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. EPA Norski lögfræðingurinn Tor Kjærvik var myrtur í íbúð í hverfinu Røa í höfuðborginni Osló í gærkvöldi. Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um verknaðinn.
NRK segir frá þessu en Kjærvik hefur verið verjandi sakborninga í fjölda morðmála, sem mikið hefur verið fjallað um, í gegnum árin. Tor Gulbrandsen hjá Oslóarlögreglunni segir í samtali við NRK að maður á fertugaldri sé í haldi vegna gruns um að hafa skotið Kjærvik til bana. Er tekið fram að maðurinn sé Norðmaður. Tor Kjærvik.AVT.no Kjærvik varð sjötugur í mars síðastliðinn, en lögregla staðfesti í morgun að hann og gerandinn tengist nánum böndum. Nágrannar segjast hafa heyrt sjö skothljóð og svo mikið öskur. Skömmu síðar hafi svo heyrst hróp úti á götu og þá hafi sést til manns með skotvopn hlaupa yfir götuna. Lögregla hefur enn ekki yfirheyrt manninn sem er í haldi. Hald hefur verið lagt á skotvopn sem er talið vera morðvopnið. Kjærvik er vel þekktur í Noregi, en hann var meðal annars verjandi sakborninga í Orderud-málinu svokallaða þar sem þrír voru skotnir til bana á heimili í Sørum í maí 1999.
Noregur Andlát Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira