Breyta fyrirkomulagi upplýsingafunda og þakka samstöðu þjóðarinnar Eiður Þór Árnason skrifar 17. febrúar 2021 19:18 Svona mun aðstaðan líta út á upplýsingafundinum á morgun. Lögreglan Frá því í október hefur fréttamönnum verið óheimilt að vera viðstaddir upplýsingafundi almannavarna og landlæknis af sóttvarnarástæðum og í stað þess tekið þátt í fundunum í gegnum fjarfundarbúnað.
Frá og með morgundeginum verður breyting þar á og fjölmiðlafólki aftur boðið að mæta upp í Katrínartún í Reykjavík og berja þríeykið augum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Þar segir að margt hafi breyst frá 12. október þegar svokölluð þriðja bylgja faraldursins var nýhafin og búið að hækka almannavarnastig í neyðarstig. „Núna, fjórum mánuðum og fimm dögum seinna er staðan í baráttunni við COVID-19 hér á landi miklu betri. Smit á Íslandi eru í lágmarki og má það þakka samstöðu þjóðarinnar.“ Dyggir áhorfendur upplýsingafunda almannavarna og landlæknis hafa þurft að venjast því að horfa á fréttamenn senda út frá heimilum sínum og vinnustöðum. Skjáskot Upplýsingafundirnir verða áfram haldnir tvisvar í viku og er fundurinn á morgun sá 164. í röðinni. Áfram verður gætt að einstaklingsbundnum sóttvörnum á fundunum og hugað að grímunotkun, 20 manna fjöldamörkum og fjarlægðarreglu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Sjá meira