1250 pinnar til, tvö þúsund væntanlegir og hafa ekki gefið upp alla von með Össurar-pinnana Birgir Olgeirsson skrifar 25. mars 2020 13:14 Einar Árnason
1.250 sýnatökupinnar voru til hér á landi í morgun. Þetta leiddi stöðufundur Veirufræðideildar Háskólans Íslands í ljós í morgun. 2.000 pinnar eru væntanlegir í dag. Þetta segir Karl G. Kristinsson, yfirlæknir veiru- og sýklafræðideildar Landspítalans, í samtali við Vísi. Pinnarnir 2.000 sem eru væntanlegir í dag koma erlendis frá. Þeir eru komnir til birgja hér á landi og á nú eftir að koma þeim á viðeigandi staði. Karl segir í samtali við Vísi að fleiri pinnar gætu komið erlendis frá í lok vikunnar.Þá á stoðtækjaframleiðandinn Össur um það bil 20.000 sýnatökupinna til annarra nota á lager og stendur nú yfir gæðaúttekt á þeim pinnum hjá veirufræðideildinni til að sjá hvort þeir séu nægjanlega góðir til að prófa yfir kórónuveirunni. Karl segir að niðurstaðan sem fékkst úr gæðaúttektinni í gær hafi ekki verið fullnægjandi að hans mati. „Við erum að athuga þá betur með annarri aðferð í dag,“ segir Karl. Eru þessir pinnar því notaðir til að taka sýni samhliða þeim veirupinnum sem hingað til hafa verið notaðir. Verða niðurstöðurnar svo bornar saman til að athuga hvort að pinnarnir frá Össuri gefi sömu niðurstöðu og þar með jafn áreiðanlegir. Sýnin verða tekin á tveimur heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu en þau verða síðan rannsökuð af veirufræðideildinni, á Landspítalanum og hjá Íslenskri erfðagreiningu. Niðurstaðan ætti síðan að liggja fyrir síðar í dag að sögn Karls.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Sjá meira