Flytja höfuðstöðvarnar frá Nauthólsvegi á Flugvelli Sylvía Hall skrifar 30. desember 2020 20:27 Höfuðstöðvarnar við Nauthólsveg 50 hafa verið seldar Reitum fasteignafélagi. Vísir/Vilhelm Icelandair Group skrifaði í dag undir samning við fasteignafélagið Reiti um sölu á skrifstofuhúsnæði félagsins við Nauthólsveg 50. Söluverðið er tæplega 2,3 milljarðar króna, sem verður nýtt að hluta til uppgreiðslu láns sem er áhvílandi á fasteigninni og styrkja lausafjárstöðu félagsins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair Group síðdegis í dag. Þar kemur fram að félagið mun leigja húsnæðið til loka árs 2023 fyrir núverandi starfsemi, en stefnt er að því að flytja höfuðstöðvarnar á Flugvelli í Hafnarfirði þar sem félagið er með hluta starfsemi sinnar. Á næstu þremur árum verður byggt við núverandi húsnæði á Flugvöllum og starfsemi félagsins í Reykjavík sameinuð þeirri sem er í Hafnarfirði. Bogi Nils Bogason forstjóri segir að um rekstrarhagræðingu sé að ræða sem muni styrkja lausafjárstöðu félagsins á krefjandi tímum. Þá sé spennandi uppbygging fram undan sem tekur mið af þörfum starfsemi félagsins til framtíðar. „Ég tel að sameining starfsstöðva okkar á höfuðborgarsvæðinu muni án efa stuðla að öflugra samstarfi milli deilda, meiri starfsánægju og auknum árangri. Það verður jafnframt ótvíræður kostur að færa höfuðstöðvar félagsins nær Keflavíkurflugvelli,“ er haft eftir Boga í fréttatilkynningu. Ársuppgjör félagsins verður birt þann 8. febrúar 2021 þar sem nánar verður gert grein fyrir sölunni.
Icelandair Reykjavík Hafnarfjörður Fréttir af flugi Mest lesið „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Sjá meira