Íslandsmeistararnir missa enn einn leikmanninn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. desember 2020 14:01 Lasse Petry hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Val. Vísir/Bára Danski miðjumaðurinn Lasse Petry mun ekki leika með Íslandsmeisturum Vals á næstu leiktíð. Hinn 28 ára gamli Dani hefur samið við HB Köge sem leikur í dönsku B-deildinni.
Petry var frábær hjá Val í sumar er liðið varð Íslandsmeistari. Hann myndaði eina sterkustu miðju landsins ásamt Hauki Páli Sigurðssyni og Kristni Frey Sigurðssyni. Alls lék hann 17 af 18 leikjum liðsins. Petry gekk til liðs við Val í janúar á síðasta ári en átti erfitt uppdráttar sumarið 2019 vegna meiðsla. Hann var hins vegar eins og áður sagði frábær í sumar og einn af betri leikmönnum deildarinnar. Alls lék hann 29 leiki fyrir Val í Pepsi Max deild karla og skoraði fimm mörk. Danski miðjumaðurinn hefur ákveðið að halda heim til Danmerkur en hann samdi við HB Köge sem situr í 7. sæti dönsku B-deildarinnar um þessar mundir. Samningur hans við Val hafði runnið út og því fer hann á frjálsri sölu. Hann hefur einnig leikið fyrir Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni sem og Lyngby í dönsku B-deildinni. Lasse Petry er sjötti leikmaðurinn sem yfirgefur Íslandsmeistara Vals. Aron Bjarnason var á láni frá ungverska félaginu Újpest en gæti komið aftur. Valgeir Lunddal Friðriksson samdi við sænska félagið Häcken í gær. Eiður Aron Sigurbjörnsson samdi við uppeldisfélag sitt ÍBV. Einar Karl Ingvarsson fór í Stjörnuna og þá fór danski framherjinn Kasper Högh aftur til Randers en hann var á láni hjá félaginu. Íslandsmeistararnir hafa hins vegar fest kaup á þeim Tryggva Hrafni Haraldssyni og Arnóri Smárasyni.
Fótbolti Íslenski boltinn Valur Pepsi Max-deild karla Mest lesið Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Formúla 1 Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Serbía 59-84 | Löguðu erfiða stöðu Körfubolti Uppgjörið: Breiðablik - Fortuna 0-1| Dönsku meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum Fótbolti Glódís hetjan í ótrúlegum sigri á Arsenal Fótbolti Valur - ÍR | Toppslagur fyrir landsleikjahlé Handbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti Fleiri fréttir Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Sjá meira