Treyja Barack Obama sló met LeBron James Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. desember 2020 14:00 LeBron James með Barack Obama þegar Obama var enn forseti Bandaríkjanna og James ennþá leikmaður Miami Heat. Getty/Mark Wilson Fyrrum Bandaríkjaforseti Barack Obama setti nýtt met á dögunum. Reyndar ekki hann sjálfur heldur gömul keppnistreyja hans frá körfuboltaferlinum.
Barack Obama spilaði á sínum tíma körfubolta með Punahou menntaskólanum á Havaíeyjum og treyja hans frá þeim tíma sló met LeBron James síðastliðinn föstudag. Treyjan hans Barack Obama seldist nefnilega á 192 þúsund dollara á uppboði í Beverly Hills í Kaliforníu en það gera meira en 24 milljónir íslenskra króna. Barack Obama's high school basketball jersey has sold for $192,000! A new World Record for a high school jersey sold at auction!The price broke the previous record set by LeBron, whose 2002 St. Vincent-St. Mary's jersey sold for $187,500 in 2019.(via Julien's Auctions) pic.twitter.com/qSAzxYsE1O— Basketball Forever (@Bballforeverfb) December 7, 2020 Með þessu er treyja Obama orðinn verðmætasta menntaskólatreyja sögunnar en gamla metið átti treyja LeBron James síðan hann spilað með St. Vincent-St. Mary´s menntaskólanum. Treyja LeBrons seldist á rúma 187 þúsund dollara á sínum tíma en það var treyjan sem LeBron James var í á forsíðu Sports Illustrated árið 2002 undir fyrirsögninni „The Chosen One“ eða hinn útvaldi. Barack Obama spilaði í treyju 23 hjá Punahou skólanum veturinn 1978-79 og hjálpaði liði sínu að verða fylkismeistari. Athygli vekur að Obama spilaði í treyju 23 en Michael Jordan kom ekki inn í NBA-deildina fyrr en árið 1984 og var á þeim tíma ennþá í Emsley A. Laney menntaskólanum í Norður-Karólínu.
NBA Barack Obama Mest lesið Sjáðu brotið sem Blikar eru brjálaðir yfir Íslenski boltinn „Mjög ljót meiðsli eftir slæma og óþarfa tæklingu“ Íslenski boltinn Látinn eftir höfuðhögg í leik Enski boltinn „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ Handbolti „Þetta var bara draumi líkast“ Handbolti Sjáðu mörkin: Sævar á skotskónum en Giroud með sigurmarkið Fótbolti „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Handbolti Villa vann loksins en Watkins rúinn sjálfstrausti Fótbolti Dagskráin í dag: Ryder-bikarinn fer af stað Sport Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Körfubolti Fleiri fréttir Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Sjá meira