Aron hafði betur á gamla heimavellinum, Rúnar fór á kostum í tapi og Oddur gerði níu Anton Ingi Leifsson skrifar 19. nóvember 2020 19:34 Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk i kvöld. Barcelona
Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk er Barcelona vann sex marka sigur á Kiel, 32-26, í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Börsungar voru einu marki yfir er liðin gengu til búningsherbergja, 16-15. Þeir skelltu hins vegar í lás í síðari hálfleik og heimamenn í Kiel skoruðu einungis ellefu mörk á síðasta hálftímanum. Aron skoraði þrjú mörk úr níu skotum en hann var ansi sigursæll með Kiel á sínum tíma. Börsungar eru með með fullt hús á toppi riðilsins eftir sex umferðir en Kiel er með sjö stig í 4. sætinu. Sigvaldi Guðjónsson skoraði úr báðum skotum sínum er Kielce vann góðan útisigur á Vardar, 33-29, í sömu keppni. Kielce er með ellefu stig eftir sjö leiki á toppi A-riðilsins. Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk er Göppingen vann öruggan sigur á Nordhorn-Lingen, 29-20, en Göppingen er í 8. sæti þýsku deildarinnar. Oddur Grétarsson gerði níu mark er Balingen vann eins marks sigur á Erlangen, 34-32, en Akureyringurinn var markahæsti leikmaður Balingen. Þetta var annar sigur þeirra á leiktíðinni en þeir eru í 16. sætinu. Rúnar Kárason lék á alls oddi er Ribe Esbjerg tapaði fyrir TTH Holstebro, 30-24, eftir að staðan var 16-15 í hálfleik. Rúnar skoraði átta af mörkum Ribe en hann skaut alls níu sinnum. Gunnar Steinn Jónsson skoraði tvö mörk en Daníel Ingason komst ekki á blað. Ribe er í 12. sæti deildarinnar.
Handbolti Danski handboltinn Þýski handboltinn Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Íslendingarnir atkvæðamiklir í kvöld Sandra með tíu í þrettán marka sigri ÍBV Engin skoraði meira en Elín Klara Með 32 mörk í síðustu þremur leikjum Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Valur steinlá gegn Blomberg-Lippe „Tækifæri fyrir aðra að stíga upp og sýna sig“ Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Haukar við toppinn og HM-farar fögnuðu á Selfossi Ákvörðun þjálfarans að taka ekki átján leikmenn: „Hefur ekkert með fjárhagsstöðuna að gera“ „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ HM hópurinn tilkynntur: Margir reynsluboltar horfnir á braut „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Sjá meira