Sagaði af sér höndina til þess að svíkja út tryggingafé Sylvía Hall skrifar 12. september 2020 22:56 Frá Ljubljana. Konan á yfir höfði sér tveggja ára fangelsi vegna málsins. Vísir/Getty
22 ára gömul kona í Slóveníu hefur verið dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa sagað af sér höndina í því skyni að svíkja út tryggingafé. Konan hafði gert fimm tryggingasamninga árið áður en atvikið átti sér stað. Á vef BBC segir að konan hafi haldið því fram að hún hafi misst höndina við að klippa trjágreinar. Dómstóll í Ljubljana komst þó að þeirri niðurstöðu að hún og kærasti hennar höfðu staðið saman að svindlinu, en hann hafði leitað að gerviútlimum á internetinu nokkrum dögum áður. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi vegna málsins. Konan, Julija Adlesic, leitaði á sjúkrahús eftir að höndin hafði verið skorin af fyrir ofan úlnlið. Hún tók þó ekki höndina sjálfa með sér og er það sagt hafa verið gert til þess að tryggja að hún yrði ekki saumuð aftur á og tjónið þannig meira. Adlesic var handtekinn ásamt nokkrum ættingjum á síðasta ári skömmu eftir atvikið. Við meðferð málsins hafnaði hún því alfarið að hafa vísvitandi skorið af sér höndina. Hefði tryggingarkrafa hennar verið tekin til greina hefði hún fengið yfir hálfa milljón evra í bætur og mánaðarlegar greiðslur til viðbótar, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins.
Slóvenía Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira