Um 30 manns í gíslingu í Manila Samúel Karl Ólason skrifar 2. mars 2020 06:43 Francis Zamora, borgarstjóri Manila, sagði sérfræðinga lögreglunnar eiga í viðræðum við öryggisvörðinn fyrrverandi, sem er reiður yfir því að hafa verið rekinn nýverið. AP/Aaron Favila
Vopnaður maður hefur tekið tugi í gíslingu í verslunarmiðstöð í Manila í Filippseyjum. Lögreglan hefur umkringt verslunarmiðstöðina og var það gert eftir að gíslatökumaðurinn, sem er fyrrverandi öryggisvörður í verslunarmiðstöðinni, hóf þar skothríð. Minnst einn hefur verið skotinn en sá er í stöðugu ástandi. Francis Zamora, borgarstjóri Manila, sagði sérfræðinga lögreglunnar eiga í viðræðum við öryggisvörðinn fyrrverandi, sem er reiður yfir því að hafa verið rekinn nýverið. Zamora segir ennfremur að maðurinn hafi reynt að fá aðra öryggisverði með sér í lið. Hann hefur krafist þess að fá að ræða við fyrrverandi samstarfsmenn sína og fjölmiðla. New York Times segir talið að gíslarnir séu um 30 og er þeim haldið í skrifstofum verslunarmiðstöðvarinnar. Auk þess að vera vopnaður byssu segist maðurinn einnig vera með handsprengju. Það hefur þó ekki verið staðfest. Verslunarmiðstöðin sem um ræðir er í hverfi auðugra og er vinsæl meðal íbúa. Þá er hún mjög nærri höfuðstöðvum lögreglunnar í Manila. VIDEO: Police respond to mass hostage-taking at Manila mall.Heavily armed police are in a standoff with a disgruntled former security guard who has taken at least 30 people hostage in a Philippines shopping mall pic.twitter.com/1L1kTAgBjG— AFP news agency (@AFP) March 2, 2020
Filippseyjar Mest lesið Sigríður Björk segir af sér Innlent Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Innlent Greindur af gervigreind og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Erlent Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Innlent Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Erlent Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Innlent Hálfur annar tími og þrjú ólík farartæki til að sækja slasaðan göngumann Innlent Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Erlent Fleiri fréttir Skaut hreingerningakonu sem fór húsavillt Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Sjá meira