Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 10:14 Flestir þeirra sem komu til Ceuta í síðustu viku sneru aftur til Marokkó innan fárra daga. Getty/Adri Salido Spánn hefur tekið upp landamæraeftirlit á ferðamenn sem koma til landsins frá Ítalíu í kjölfar svipaðra aðgerða Ítalíu gagnvart Spáni. Deilur á milli ríkjanna hafa harðnað eftir að tugþúsundir flóttamanna streymdu inn á spænska sjálfstjórnarsvæðið Ceuta frá Marokkó í síðustu viku.
Ítalía afnam tímabundið Schengen-samstarf um frjálsa fólksflutninga milli landanna tveggja í kjölfar streymis flótta- og farandfólks frá Marokkó til Ceuta. Ceuta er spænskt landsvæði í Norður-Afríku og ytri landamæri Evrópusambandsins. Spænskir ríkisborgarar séu undanþegnir eftirlitinu við komuna til Ítalíu og að ráðstafanirnar eigi aðeins við ríkisborgara utan Evrópu. Í gær krafðist Spánn þess að Ítalía afnæmi sitt eftirlit fyrir lok helgar en að sögn ítalskra stjórnvalda verði það í gildi til 15. ágúst. Aðgerðir Spánar verða í gildi í til 7. september að sögn breska ríkisútvarpsins. Talið er að um 70 þúsund flóttamenn hafi nú snúið aftur til Marokkó en að um hundrað hafi látið lífið í hamaganginum þegar fólkið lagði til sunds til að synda fram hjá landamæragirðingu sem skagaði út í Miðjarðarhafið og aðskilur Ceuta frá Marokkó. Sjá einnig: Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, hefur um nokkra tíð kallað eftir strangari löggjöf hvað varðar fólksflutninga innan Evrópusambandsins. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, sagði stöðuna byggða á falsrökum og að engin leið væri fyrir fólkið sem kom til Ceuta að komast inn á Schengen-svæðið. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, kallaði fyrr í vikunni eftir samhentu átaki Evrópuríkja um aukið öryggi á landamærum sambandsins. Boðað var til neyðarfundar með innanríkisráðherrum Schengen-ríkjanna vegna atviksins í Ceuta í síðustu viku. Meðal þeirra sem sátu fundinn var Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, en hún sagði fyrstu viðbrögð ríkjanna hafa byggst á ófullnægjandi upplýsingum um sérstöðu Ceuta.
Spánn Ítalía Tengdar fréttir Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Ströndin við víggirt landamæri Marokkó og spænsku hólmlendunnar Ceuta er þakin stökum skóm, yfirgefnum flíkum og hringkútum eftir að hátt í sextíu þúsund manns komust yfir þau á einum sólarhring. 31. júlí 2026 22:48 Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Sjá meira
Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Ströndin við víggirt landamæri Marokkó og spænsku hólmlendunnar Ceuta er þakin stökum skóm, yfirgefnum flíkum og hringkútum eftir að hátt í sextíu þúsund manns komust yfir þau á einum sólarhring. 31. júlí 2026 22:48