Ætluðu að hafa sex hótel opin í vetur en þurfa að endurmeta Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. ágúst 2020 09:17 Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela. Vísir/Jóhann K.
Davíð Torfi Ólafsson framkvæmdastjóri Íslandshótela segir fátt annað í stöðunni en að samþykkja þau ferðatakmörk sem yfirvöld hafa kynnt að sett verði á ferðir hingað til lands. Áformað var að sex a sautján hótelum keðjunnar yrði opin í vetur en verið er að endurskoða það eftir ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Á föstudaginn voru kynntar nýjar reglur sem taka gildi á miðvikudaginn. Þá munu allir þeir sem koma hingað til lands fara í tvær skimanir og fjögurra til fimm daga sóttkví á milli skimana. Ferðaþjónustan telur kvaðirnar samsvara því að landinu hafi verið lokað aftur fyrir ferðamönnum. Fáum hugnist að koma hingað til lands til þess eins að loka sig af í fjóra til fimm daga. „Þetta er auðvitað mjög erfitt í alla staði en ég hef verið að horfa á þetta þannig að þetta er ákvörðun sem er tekin út frá heilbrigðissjónarmiðum. Þetta telja menn að sé rétt í stöðunni að gera,“ sagði Davíð Torfi í Bítinu í morgun aðspurður um hvernig honum litist á stöðuna eftir ákvörðun ríkisstjórnarinnar. „Það er alveg sama hvað maður er ósáttur þó að kannski hafi þetta ekki verið að koma með ferðamönnum, allavega erlendum ferðamönnum, inn og smita þannig þá held ég að við verðum bara að bakka upp þessa aðgerð og reyna að sníða stakk eftir vexti,“ sagði Davíð Torfi sem virtist líta á björtu hliðarnar. Þannig vonaðist hann til þess að með því að herða aðgerðir á landamærum gæti lífið innanlands smám saman tekið á sig eðlilega mynd. „Og kannski helst að horfa þannig á að hér nái samfélagið að þróast með eðlilegum hætti og hægt að rólega getum við aflétt höftum, skólar gengið almennilega og innanlandsmarkaðurinn, fundir, ráðstefnur, jólahlaðborðin og allt þetta gengi með eðlilegu sniði og svo bara hægt og rólega eftir áramótin förum við að opna eftir því sem fram vindur í löndunum í kringum okkur,“ sagði Davíð Torfi. Framundan er fundur Íslandshótela og skuldabréfaeigenda þar sem hótelkeðjan mun sækjast eftir því að breyta skilmálum, sem felur meðal annars í sér greiðslufrystingu á næstu fjórum gjalddögum. Í greinargerð með tillögu Íslandshótela kom fram að viðskiptabanki hótelkeðjunnar hefði veitt fyrirtækinu ákveðnar tilslakanir, og standa vonir til að skuldabréfaeigendur geri slíkt hið sama. Alls eru 17 hótel í rekstri Íslandshótela, en þau hafa ekki verið öll opin í sumar. „Það er búið að vera mikið stuð hjá okkur í sumar, júní, júlí og ágúst búnir að vera mjög góðir. Innanlandsmarkaðurinn hefur tekið vel við sér en við höfum samt bara getað starfrækt níu hótel af sautján,“ sagði Davíð Torfi. Sex hótel áttu að vera opin í vetur en ákvörðun ríkisstjórnarinnar gæti haft áhrif á það. „Við erum aðeins að endurmeta stöðuna núna hvað verður,“ sagði Davíð Torfi. Aðeins eitt hótel af sex, Grand Hótel, hefur verið opið í sumar. Davíð Torfi var einnig spurður um hvort að herðar aðgerðir á landamærunum myndu þýða uppsagnir á starfsfólki, sagði hann hótelkeðjuna einfaldlega vera að reikna dæma upp á nýtt eftir tilkynningu föstudagsins. „Þetta snýst held ég frekar um endurráðningar af því að við auðvitað eins og önnur fyrirtæki höfum verið að nýta þessi útspil frá ríkisstjórninni. Fólkið hjá okkur í sumar hefur flest verið að vinna á uppsögn og nú er bara verið að stilla af og sjá hverja við getum endurráðið. Vonandi getum við endurráðið eins marga og við mögulega getum.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Atvinnulíf Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim Atvinnulíf Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Viðskipti innlent Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira