Átta handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu við Seljaveg Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. janúar 2020 14:24 Auk lögreglu komu fulltrúar Vinnumálastofnunar, Vinnueftirlitsins og Ríkisskattstjóra að aðgerðum við Seljaveg. Vísir/Frikki
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók átta erlenda ríkisborgara í umfangsmiklum aðgerðum á framkvæmdasvæði við Seljaveg nærri Héðinshúsi í Vesturbæ Reykjavíkur í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru mennirnir handteknir vegna gruns um að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum við skráningu í Þjóðskrá. Stundin greindi fyrst frá málinu í dag og lýsti í umfjöllun sinni umfangsmikilli sameiginlegri aðgerð lögreglu, Ríkisskattstjóra, Vinnueftirlitsins og Vinnumálastofnunar við nýbyggingu á Seljavegi, þar sem staðið hafa yfir framkvæmdir. Skúli Jónsson yfirlögregluþjónn í Hafnarfirði segir í samtali við Vísi að á annan tug lögreglumanna hafi verið á vettvangi á Seljavegi í morgun að fylgja eftir rannsókn vegna gruns um áðurnefnt skjalafals. Rannsóknin sé að frumkvæði lögreglu en fulltrúar frá áðurnefndum stofnunum taki þátt í aðgerðum. Lögregla rannsakar nú skilríki mannanna og ferðir þeirra hingað til lands. Skúli segir mennina nýkomna í vörslu lögreglu og rannsókn málsins á frumstigi.
Hafnarfjörður Lögreglumál Reykjavík Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira