„Ég myndi aldrei nokkurn tímann treysta Garmin aftur“ Birgir Olgeirsson skrifar 28. júlí 2020 13:12 Theodór Ragnar Gíslason, tæknistjóri Syndis. Vísir/Baldur
Rússneskur hakkarahópur hefur krafið tæknirisann Garmin um tíu milljónir dollara í lausnargjald. Hópurinn heldur tölvukerfi Garmin í gíslingu og hefur þjónustan legið niðri. Þúsundir Íslendinga bera Garmin heilsuúr sem fylgjast með ferðum þeirra og líðan. Íslensk fyrirtæki hafi borgað lausnargjald vegna sams konar árásar. Rússneski hakkarahópurinn kallar sig Evil Corp en bandaríska alríkislögreglan hefur heitið fimm milljónum dollara í verðlaunafé fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku hans. Hakkarahópurinn virðist hafa náð að slökkva á öllum vörnum Garmin og dreift hugbúnaði á tölvukerfi fyrirtækisins. Hefur Garmin þjónustan legið niðri í töluverðan tíma en virðist vera að komast hægt og rólega aftur í loftið. „Þessi hakkarahópur, Evil Corp, er búinn að vera ansi virkur undanfarin ár. Hann brýst inn í netkerfi hjá Garmin og tekur það yfir. Það gæti hafa gerst yfir einhvern tíma. Þeir virðast ná að slökkva á öllum vörnum þeirra og dreifa hugbúnaði á allar tölvur fyrirtækisins, alla netþjóna og þar sem öll þeirra kerfi eru hýst. Þessi hugbúnaður heitir Wasted Locker sem er lausnargjalds hugbúnaður. Hann dulkóðar öll gögn á tölvunum og á sama tíma og þetta er að gerast eru þeir búnir að skemma afritunarbúnað, sem er yfirleitt rafrænn og aðgengilegur og fyrir utan að sniðganga allar varnir fyrirtækisins, sem gerir þetta ennþá áhugaverðara, er búið að dulkóða allar tölvurnar sem er herfileg staða að vera í,“ segir Theodór Ragnar Gíslason, tæknistjóri hjá íslenska tölvuöryggisfyrirtækinu Syndis. Garmin úrin hafa notið mikilla vinsælda hér á landi.EPA „Hakkaðir í drasl“ Af því að hakkararnir eyðilögðu afritin hafi Garmin þurft að treysta á afrit sem eru ekki á netþjónum, þess vegna hafi gengið svo hægt að koma þjónustunni aftur í loftið. „Þeir voru bara hakkaðir í drasl. Þetta er ekki klassísk phishing árás heldur allt netkerfið hakkað í tætlur,“ segir Theodór. En hvaða þýðingu hefur þetta eiginlega fyrir notendur Garmin sem bera heilsuúr frá fyrirtækinu? Heilsuúrin fylgjast ekki einungis með ferðum notenda sinna heldur hafa notendurnir í mörgum tilvikum gefið úrunum aðgang að símtölum sínum og skilaboðum. Þá gætu notendur hafa áframselt aðgang að upplýsingum til annarra forrita sem þeir hafa mögulega tengst með Facebook-aðgangi sínum. „Ég myndi aldrei nokkurn tímann treysta Garmin aftur, ef þú spyrð mig. Það er bara mín skoðun,“ segir Theodór Ragnar. Hann segir það vera vegna þess hvaða upplýsingar Garmin hefur gefið frá sér um þessa árás, þar sem lítið er að finna um svör vegna hennar. „Samt er alveg ljóst að þeir hafa verið hakkaðir í spað. Fyrstu vísbendingar gefa til kynna að hakkkararnir hafi ekki náð í gögn en ég myndi ekki treysta því fyrir fimm aur. Ég allavega myndi ekki treyst þeim sjálfum fyrir mínum gögnum, þeir eru með tæki úti um allt og þessir hakkarar höfðu væntanlega fulla stjórn á þessum tækjum í gegnum kerfi Garmin, það er svolítið ógnvekjandi tilhugsun,“ segir Theodór. Íslensk fyrirtæki lent í samskonar árás Árásin gefur til kynna að Garmin hafi sett öll sín öryggismál í sömu körfuna. „Öll þeirra kerfi fara niður við eina tölvuárás, það gefur til kynna að það sé ekkert sérstaklega góð lagskipting á örygginu hjá þeim,“ segir Theodór. „Íslensk fyrirtæki hafa lent í svona árás, þar sem tekið er yfir þeirra netkerfi í raun og veru og öll þeirra gögn dulkóðuð, það hefur ekki farið í fjölmiðla og þessi fyrirtæki hafa sum hver borgað. Þetta er ekki bundið við Garmin,“ segir Theodór.
Tækni Mest lesið Sigríður Björk segir af sér Innlent Heldur fullum launum Innlent Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Innlent Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Innlent Sögð ætla að leita á náðir Trumps Erlent Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Innlent Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Innlent Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Erlent Fleiri fréttir Arndís Soffía tekur við af Grími Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Skyggnst inn í Hegningarhúsið Enginn gleymir þessum degi fyrir tveimur árum Heldur fullum launum Sigríður Björk hverfur á braut og umboðsmaður vill endurskoða meðferðarheimilin Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Sigríður Björk segir af sér Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga – fyrri dagur Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Hálfur annar tími og þrjú ólík farartæki til að sækja slasaðan göngumann Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Lestir 205 steypubíla fóru í nýja brú yfir Breiðholtsbraut Íslandsbanki ríður á vaðið og svipast um í Hegningarhúsinu „Gramsaði í munum“ og ók síðan brott á stolnum bíl undir áhrifum Vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanesbæ „Dagur, enga frasapólitík hér“ Ákvörðun ráðherra megi ekki litast af almenningsáliti Húsæðis- og efnahagsmál brenna á ungu fólki „Hann hlýtur að leggja allt kapp á Reykjavík“ Margir keypt fleiri en einn vegna fordómafullrar umræðu Borgarstjórnarsigur lífsnauðsynlegur Sjálfstæðismönnum Brunaði af stað frá ölvunarpósti en var handtekinn við Hamraborg Var komin á slæman stað og fór ekki úr húsi án fylgdar Þriggja stiga skjálfti í Öskju Getur ríkislögreglustjóri setið áfram? Píratar kjósa formann í lok mánaðar Sjá meira