1,7 milljóna sekt fyrir alvarleg umferðarlagabrot Sylvía Hall skrifar 15. júní 2020 14:47 Lögregla stöðvaði för mannsins í öll skiptin. Þá mældist amfetamín í blóði hans og var hann dæmdur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Vísir/Vilhelm
Karlmaður var í dag dæmdur til þess að greiða 1,7 milljónir króna í sekt fyrir ítrekuð umferðarlagabrot. Greiði hann ekki sektina innan fjögurra vikna kemur 52 daga fangelsi í stað hennar. Maðurinn var jafnframt sviptur ökuréttindum í fimm ár frá dómsuppkvaðningu. Hann mætti ekki við þingfestingu málsins í maí síðastliðnum. Um fjögur brot var að ræða en maðurinn var undir áhrifum amfetamíns og annarra efna við akstur bifreiðar. Lögregla stöðvaði för mannsins í öll skiptin, þrisvar í Grafarvogi en eitt skipti í Árbæ. Brotin áttu sér stað á fimm mánaða tímabili á síðasta ári. Maðurinn hafði gengist við því að greiða tvær milljónir í sekt fyrir brotin og vörslu fíkniefna í febrúar á þessu ári. Þar áður hafði hann gengist undir lögreglustjórasátt í október árið 2018 vegna sambærilegra brota sem fól í sér 280 þúsund króna sekt, en sú sátt var hegningarviðauki við fyrri dóm héraðsdóms Reykjaness í september 2018 þar sem maðurinn var dæmdur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fyrrnefndur dómur var hegningarauki við þrjár lögreglustjórasáttir sem maðurinn hafði undirgengist vegna vörslubrota og aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann hefur nú tvisvar verið dæmdur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.
Dómsmál Fíkn Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira