Meira en tvær milljónir tilfella í Bandaríkjunum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 11. júní 2020 06:41 Frá neðanjarðarlestarstöð í New York-borg. Ekkert ríki hefur farið verr út úr faraldri kórónuveirunnar en New York. David Dee Delgado/Getty
Meira en tvær milljónir manna hafa nú greinst með kórónuveiruna sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19 í Bandaríkjunum. Hvergi í heiminum hafa fleiri tilfelli veirunnar verið staðfest. Rúmlega 400 þúsund smit hafa greinst í New York-ríki, og meira en 30 þúsund látið lífið af völdum Covid-19. Það er langtum meira en í nokkru öðru ríki, en næst á eftir kemur nágrannaríkið New Jersey, með tæp 168 þúsund tilfelli og rúmlega 12 þúsund dauðsföll. Heildartala látinna í Bandaríkjunum er nú 115.137, samkvæmt tölum frá Johns Hopkins háskóla. Lítillega hefur hægt á faraldrinum vestanhafs síðan hann stóð sem hæst, en þó hafa greinst um á bilinu 19 til 20 þúsund smit síðustu daga. Hæsta tala nýsmita í Bandaríkjunum sást þann 24. apríl, en þá greindust yfir 39 þúsund á einum sólarhring. Víða um Bandaríkin er þegar farið að slaka á samfélagslegum hömlum sem komið var á til að sporna við útbreiðslu veirunnar. Til að mynda opnaði ströndin á Miami í gær, í fyrsta sinn síðan snemma í maí. Þá gera rekstraraðilar Disneylands í Kaliforníu ráð fyrir því að skemmtigarðurinn opni aftur í júlí. Garðurinn lokaði í mars.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Telja dagana frá síðasta innbroti Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Von á mesta vindinum í marga mánuði Veður „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Innlent Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Innlent Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Erlent Fleiri fréttir Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru Ekki hægt að staðfesta drónaflug við Álaborgarflugvöll Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Segist ekki munu leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Keppast við að ákæra Comey Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Flugvellinum í Álaborg lokað vegna drónaflugs Segja árásina hafa beinst gegn ICE Pútín auki einfaldlega stríðsreksturinn verði hann ekki stöðvaður Sprenging í Osló talin tengjast sænsku glæpagengi Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Biðjast afsökunar á „svörtum kafla“ í sögu Danmerkur og Grænlands Kenna Trump-liðum um bæði rúllustigann og textavélina Ekki staðfest hvort það hafi verið drónar sem röskuðu flugumferð í Osló Ekki pappírstígur heldur alvöru björn Vinsælum þáttarstjórnanda sagt upp vegna ásakana um brot gegn unglingsstúlku Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Sjá meira