Óttast um gjaldþrot seðlaprentara íslenska ríkisins Eiður Þór Árnason skrifar 6. desember 2019 09:00 Seðlabanki Íslands segist fylgjast vel með stöðu mála. Getty/LanceB
Mjög er óttast um fjárhagslega stöðu breska fyrirtækisins De La Rue sem prentað hefur íslenska peningaseðla fyrir Seðlabanka Íslands í fleiri áratugi. Fyrirtækið gaf í síðustu viku út viðvörun þar sem hætta er sögð á því að félagið verði gjaldþrota ef áætlun þess um viðsnúning gengur ekki eftir og allt fer á versta veg. Fregnirnar koma í kjölfar þess að De La Rue greindi frá tapi á fyrri árshelmingi. Aðspurður um það hvort Seðlabanki Íslands hyggist grípa til einhverra ráðstafanna vegna fregna af fjárhagsvandræðum De La Rue segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri bankans, einfaldlega „að Seðlabanki Íslands fylgist vel með stöðu birgja sinna.“ Fyrirtækið hefur gengið í gegnum nokkur veigamikil fjárhagsleg áföll á síðustu tveimur árum sem talin eru hafa haft neikvæð áhrif á rekstur þess. Til að mynda missti De La Rue langvarandi samning sinn við breska ríkið um framleiðslu vegabréfa á síðasta ári. Einnig neyddist það sama ár til þess að afskrifa átján milljóna punda kröfu, eða sem nemur tæpum 2,9 milljörðum íslenskra króna, á hendur venesúelska ríkinu eftir að seðlabankinn þar í landi gat ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart fyrirtækinu. De La Rue, sem var stofnað árið 1821, prentar peningaseðla fyrir minnst 140 seðlabanka víða um heim og hefur útbúið breska seðla frá því að fyrirtækið hóf seðlaprentun árið 1860. Um er að ræða umfangsmesta seðlaprentara í heimi.
Bretland Íslenska krónan Seðlabankinn Tengdar fréttir Hver eina króna kostar Seðlabankann þrjár Önnur ríki hafa hætt útgáfu minnstu myntar vegna mikils kostnaðar. 26. júlí 2019 16:00 Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Himneskt ei meir Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Hver eina króna kostar Seðlabankann þrjár Önnur ríki hafa hætt útgáfu minnstu myntar vegna mikils kostnaðar. 26. júlí 2019 16:00