Pompeo laug um símtalið við Zelensky Samúel Karl Ólason skrifar 2. október 2019 12:01 Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. AP/Andrew Medichini
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að hafa verið á línunni þegar Donald Trump, forseti, bað Volodymir Zelensky, forseta Úkraínu, um að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing sinn. Fyrst þegar fjölmiðlar komust á snoðir um símtalið neitaði Pompeo að tjá sig um það því hann vissi ekki af því og hafði ekki lesið eftirrit upp úr því. Símtal þetta hefur leitt til þess að Demókratar hófu ákæruferli gegn Trump fyrir embættisbrot og segja hann hafa misnotað vald sitt og utanríkisstefnu Bandaríkjanna í pólitískum hagnaði. Skömmu áður en Trump ræddi við Zelensky hafði hann fryst um 400 milljóna dala neyðaraðstoð til Úkraínu. Þegar Zelensky ræddi hernaðaraðstoð og vopnakaup við Trump sagði hann: „Þú þarft samt að gera okkur greiða“ og bað hann um að rannsaka Biden vegna innihaldslausrar samsæriskenningar um Biden og son hans Hunter.Sjá einnig: Trump segir Demókrata fremja valdaránFyrst þegar Pompeo var spurður út í símtalið sagðist hann ekkert vita um það. Síðustu daga hafa fjölmiðlar ytra fengið heimildir fyrir því að Pompeo hafi verið á línunni og staðfesti hann það í dag á blaðamannafundi á Ítalíu. Uppljóstrari sem kvartaði vegna símtalsins sagði starfsmenn Trump hafa gripið til aðgerða til að reyna að koma í veg fyrir að upplýsingar um símtalið lækju til fjölmiðla, af ótta við að Trump hafi brotið lög í samtali sínu við Zelensky. Allar upplýsingarnar hafi verið færðar úr tölvukerfinu sem geymir yfirleitt gögn um símtöl sem þessi, yfir í tölvukerfi sem geymir leynileg gögn. Það var svo staðfest að gögnin hafi verið færð á milli kerfa.Nú hafa fregnir borist af því að það tölvukerfi hafi verið uppfært í kjölfarið svo hægt væri að fylgjast með því hverjir hefðu aðgang að því.Í gær sendi Pompeo svo bréf til þingsins þar sem hann gagnrýndi þingmenn fyrir að vilja ræða við starfsmenn Utanríkisráðuneytisins vegna málsins. Sakaði hann þingmenn um að reyna að ógna starfsmönnum sínum og sagði þá ekki hafa tíma til að svara spurningum þeirra. Bréf Pompeo hefur reitt þingmenn til reiði sem saka ráðherrann um að reyna að hindra framgang rannsóknar þeirra. Politico segir bréfið einnig hafa vakið reiði meðal núverandi og fyrrverandi starfsmanna ráðuneytisins sökum þess að Pompeo hafi gert lítið sem ekkert til að verja starfsmennina gegn starfsmönnum Hvíta hússins og að Pompeo sjálfur hafi gengið hart fram gegn starfsmönnum sínum. Einn starfsmaður sagði bréfið vera „hámark kaldhæðni“.Undirmaður Pompeo hefur þar að auki verið sakaður um að misþyrma starfsmönnum."I was on the phone call."US Secretary of State Mike Pompeo admits that he was on the July 25 phone call in which President Trump asked Ukrainian President Volodymyr Zelensky to investigate former Vice President Joe Biden. https://t.co/V5ORf33o8j pic.twitter.com/tmEBC1721Z— CNN (@CNN) October 2, 2019 Flashback: Pompeo was asked last week by ABC whether he knew about the conversation between Trump and Zelensky. He demurred, saying he just got the report. We now know he took part in the call itself. pic.twitter.com/d8wvtPTsUv— Matt McDermott (@mattmfm) September 30, 2019
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Ákæruferli þingsins gegn Trump Tengdar fréttir Ríkisstjórn Trump endurnýjar rannsókn á tölvupóstum Clinton Utanríkisráðuneyti Trump reynir nú að blása lífi í eitt helsta hitamál kosninganna árið 2016: tölvupósta Hillary Clinton. 29. september 2019 08:21 Biden krefst þess að Giuliani verði ekki boðið í fleiri viðtöl Rudy Giuliani, einkalögmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, segir að hann muni ekki svara spurningum þingmanna án þess að fá leyfi frá Trump. 29. september 2019 22:30 Reyndu að fela upplýsingar um símtal Trump og Zelensky Leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur birt svokallaða uppljóstrarakvörtun sem leitt hefur til þess að Demókratar á þingi hafa hafið formlegt ákæruferli á hendur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. 26. september 2019 13:27 Hvíta húsið vissi af kvörtun uppljóstrara skömmu eftir símtal Trump og Zelenskí Uppljóstrari innan CIA lét lögfræðing leyniþjónustunnar vita áður en hann lagði inn formlega uppljóstrarakvörtun sem veitti honum lagalega vernd. Hvíta húsið virðist því hafa vitað nær frá upphafi hvaðan kvörtunin kom. 27. september 2019 10:16 Trump leggur til handtöku pólitísks andstæðings Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði í dag til að handtaka skyldi pólitískan andstæðing sinn fyrir landráð vegna ummæla um samskipti Trumps við Úkraínuforseta. Forseti Úkraínu segir ríki sitt ekki þurfa að hlýða skipunum annarra. 30. september 2019 18:30 Hvíta húsið leyndi fleiri viðkvæmum símtölum Trump við Pútín og Sáda Trump er sagður hafa tjáð háttsettum rússneskum embættismönnum í Hvíta húsinu að hann kippti sér ekki upp við afskipti Rússa af forsetakosningunum 2016 því Bandaríkin gerðu það sama í öðrum löndum. 28. september 2019 07:59 Trump og repúblikanar slá met í fjáröflun Forsetaframboð Trump stefnir að því að verja um milljarði dollara í endurkjör hans, jafnvirði um 124 milljarða íslenskra króna. 1. október 2019 21:31 Ástralar kveðast reiðubúnir til að aðstoða við hvers kyns rannsóknir Donald Trump Bandaríkjaforseti bað forsætisráðherra Ástralíu um að rannsaka Rússarannsóknina svokölluðu 1. október 2019 19:00 Bað forsætisráðherra Ástralíu um að hjálpa Barr að rannsaka Rússarannsóknina Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, þrýsti á Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, og bað hann um að hjálpa William Barr, dómsmálaráðherra sínum, við rannsókn hans á uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu. 30. september 2019 21:30 Fátt sem kemur í veg fyrir hefndir Trump gegn uppljóstraranum Sérfræðingar óttast að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og bandamenn hans komi upp um uppljóstrarann sem kom upp um símtal hans við Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, þar sem Trump bað hann um að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing sinn. 1. október 2019 11:45 Bað Boris einnig um hjálp við að grafa undan Rússarannsókninni Donald Trump hefur lengi staðið í þeirri trú að uppruna rannsóknarinnar megi að miklu leyti rekja til Bretlands og hefur hann meðal annars sakað breskar leyniþjónustur um að njósna um framboð sitt fyrir Barack Obama, forvera sinn. 2. október 2019 11:21 Mest lesið Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Enn fer ekki saman hljóð og mynd Erlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Erlent Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Innlent „Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Erlent Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Innlent Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Innlent Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Innlent Lögregla leitar manns Innlent Fleiri fréttir Úkraínskir drónar brotlentu í Finnlandi Tölur um vaxandi trúrækni ungs fólks byggðar á sandi „Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Rændu verkum frönsku meistaranna sem metin eru á milljarða Enn fer ekki saman hljóð og mynd Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Tólf tonnum af Kitkat rænt Íranir búa sig undir árásir landherliðs Milljónir No Kings-mótmælenda: „Það verður að stöðva Trump“ Í haldi lögreglu eftir að hafa ekið á gangandi vegfarendur Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Hútar skjóta eldflaugum að Ísrael Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Ekkert flugvallarverkfall á Spáni á morgun en kannski á mánudag Heuermann sagður ætla að játa Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Finnskur þingmaður dæmdur fyrir að segja samkynhneigð „þroskaröskun“ Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Sjá meira
Ríkisstjórn Trump endurnýjar rannsókn á tölvupóstum Clinton Utanríkisráðuneyti Trump reynir nú að blása lífi í eitt helsta hitamál kosninganna árið 2016: tölvupósta Hillary Clinton. 29. september 2019 08:21
Biden krefst þess að Giuliani verði ekki boðið í fleiri viðtöl Rudy Giuliani, einkalögmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, segir að hann muni ekki svara spurningum þingmanna án þess að fá leyfi frá Trump. 29. september 2019 22:30
Reyndu að fela upplýsingar um símtal Trump og Zelensky Leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur birt svokallaða uppljóstrarakvörtun sem leitt hefur til þess að Demókratar á þingi hafa hafið formlegt ákæruferli á hendur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. 26. september 2019 13:27
Hvíta húsið vissi af kvörtun uppljóstrara skömmu eftir símtal Trump og Zelenskí Uppljóstrari innan CIA lét lögfræðing leyniþjónustunnar vita áður en hann lagði inn formlega uppljóstrarakvörtun sem veitti honum lagalega vernd. Hvíta húsið virðist því hafa vitað nær frá upphafi hvaðan kvörtunin kom. 27. september 2019 10:16
Trump leggur til handtöku pólitísks andstæðings Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði í dag til að handtaka skyldi pólitískan andstæðing sinn fyrir landráð vegna ummæla um samskipti Trumps við Úkraínuforseta. Forseti Úkraínu segir ríki sitt ekki þurfa að hlýða skipunum annarra. 30. september 2019 18:30
Hvíta húsið leyndi fleiri viðkvæmum símtölum Trump við Pútín og Sáda Trump er sagður hafa tjáð háttsettum rússneskum embættismönnum í Hvíta húsinu að hann kippti sér ekki upp við afskipti Rússa af forsetakosningunum 2016 því Bandaríkin gerðu það sama í öðrum löndum. 28. september 2019 07:59
Trump og repúblikanar slá met í fjáröflun Forsetaframboð Trump stefnir að því að verja um milljarði dollara í endurkjör hans, jafnvirði um 124 milljarða íslenskra króna. 1. október 2019 21:31
Ástralar kveðast reiðubúnir til að aðstoða við hvers kyns rannsóknir Donald Trump Bandaríkjaforseti bað forsætisráðherra Ástralíu um að rannsaka Rússarannsóknina svokölluðu 1. október 2019 19:00
Bað forsætisráðherra Ástralíu um að hjálpa Barr að rannsaka Rússarannsóknina Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, þrýsti á Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, og bað hann um að hjálpa William Barr, dómsmálaráðherra sínum, við rannsókn hans á uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu. 30. september 2019 21:30
Fátt sem kemur í veg fyrir hefndir Trump gegn uppljóstraranum Sérfræðingar óttast að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og bandamenn hans komi upp um uppljóstrarann sem kom upp um símtal hans við Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, þar sem Trump bað hann um að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing sinn. 1. október 2019 11:45
Bað Boris einnig um hjálp við að grafa undan Rússarannsókninni Donald Trump hefur lengi staðið í þeirri trú að uppruna rannsóknarinnar megi að miklu leyti rekja til Bretlands og hefur hann meðal annars sakað breskar leyniþjónustur um að njósna um framboð sitt fyrir Barack Obama, forvera sinn. 2. október 2019 11:21