Lögregla leitar ökumanns sem ók á 10 ára dreng Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. september 2019 11:45 Slysið varð á þeim stað sem merktur er með X á myndinni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að ökumanni fólksbíls sem ók á 10 ára dreng á Fífuhvammsvegi í Kópavogi föstudaginn 16. ágúst síðastliðinn klukkan 13:48. Málið var ekki tilkynnt lögreglu fyrr en síðar. Í tilkynningu lögreglunnar vegna málsins segir að við áreksturinn hafi drengurinn fallið í götuna en staðið upp aftur og farið strax af vettvangi. Ökumaður bílsins náði því ekki að hafa tal af drengnum. „Foreldrar drengsins fóru með hann á slysadeild eftir óhappið og þá komu áverkar í ljós. Ökumaður fólksbifreiðarinnar var á vettvangi í nokkrar mínútur og ræddi m.a. við aðra vegfarendur, en hann og aðrir sem kunna að lenda í slíkum aðstæðum eru minntir á mikilvægi þess að tilkynna um það til lögreglu. Meðfylgjandi er mynd af gatnamótunum þar sem slysið varð, en fólksbifreiðinni var ekið austur Fífuhvammsveg á móts við Smáralind,“ segir í tilkynningu lögreglu. Er umræddur ökumaður beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en hafi aðrir upplýsingar um ökumanninn, eða slysið, má koma þeim á framfæri í tölvupósti á netfangið heimir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira