51% einstaklinga á aldrinum 18-29 reykt kannabis Andri Eysteinsson skrifar 17. september 2019 18:06 22% fólks á aldrinum 18-29 telur að kannabis sé mjög lítið eða alls ekki skaðlegt. Fréttablaðið/Stefán
22% fólks á aldrinum 18-29 telur að kannabis sé mjög lítið eða alls ekki skaðlegt. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Foreldrahús. Könnunin var lögð fyrir þjóðgátt Maskínu sem dregin er með tilviljun úr Þjóðskrá. Alls voru svarendur 897 talsins en voru þeir alls staðar af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Í könnuninni, sem fram fór dagana 19. til 28. ágúst síðastliðinn voru þátttakendur spurðir um viðhorf þeirra til kannabiss og einnig hvort það hefði prófað eða neytt nokkurra vímugjafa á lífsleiðinni. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar telja 87% landsmanna að kannabis sé skaðlegt heilsunni. Mikill munur er á viðhorfi eftir aldri. 39% þeirra sem eru undir þrítugu telja kannabis mjög skaðlegt, 2% telja efnið ekki skaðlegt og um 20% segjast telja að kannabis sé mjög lítið skaðlegt. Til samanburðar telja um 60% þeirra sem eru á aldrinum 30 ára og eldri að kannabis sé mjög skaðlegt heilsunni. Niðurstöður þess hluta könnunarinnar sem lýtur að neyslu gefa til kynna að 83% þátttakenda hafi bragðað áfengi en þriðjungur hafði prófað eða neytt kannabisefna. 13% höfðu prófað amfetamín og 12,3% kókaín. Sé litið til einstakra aldurshópa hafði meira en helmingur þeirra á aldrinum 18-29 prófað kannabis (51,4%) og 23,6% kókaín.
Fíkn Heilbrigðismál Kannabis Mest lesið Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Erlent Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Innlent Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Innlent Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Innlent Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim Innlent Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Innlent „Brjálaður aðili“ reyndist eftirlýstur af lögreglu Innlent „Fólk er bara að vinna minna“ Innlent Milljónir No Kings-mótmælenda: „Það verður að stöðva Trump“ Erlent Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum Innlent Fleiri fréttir Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði „Fólk er bara að vinna minna“ Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Sprengja í umsóknum um au-pair Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Verðbólga, biskupsmálið og utanríkismál Breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar auglýstar Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Brjálaður aðili“ reyndist eftirlýstur af lögreglu Pétur Markan bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum Sameining hreppanna tveggja samþykkt Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Allir fundnir óslasaðir eftir snjóflóð Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Gular veðurviðvaranir og vegir á óvissustigi Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Ekið á mann í Þrengslunum Eins og síðast en „einu númeri minna“ Vilja ekki takmarka trúariðkun „umfram það sem brýnir almannahagsmunir krefjast“ Úrvalsdeild og neðri deild en restin í vandræðum Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Lokun Hormússunds: Takmörkuð áhrif á áburðarverð til bænda í ár en óvíst um framhaldið Vinstrið á blússandi siglingu Eldur kviknaði í bíl Sjá meira