Það gekk illa að fá konur Sólrún Freyja Sen skrifar 31. ágúst 2019 07:45 Elinóra Inga Sigurðardóttir er stofnandi KVENN, félags kvenna í nýsköpun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON brink
Félagskonur KVENN eru í dag 108 talsins. Elinóra hafði áður verið formaður Landssambands hugvitsmanna frá árinu 1998, en það gekk illa að fá konur til að skrá sig í það félag. „Þeim fannst þær ekki vera með uppfinningar eða tæknilausnir og gátu illa samsamað sig hugviti karlanna. Þess vegna ákváðum við Guðrún Sæmundsdóttir að fara af stað og kalla saman nokkrar konur sem við þekktum og voru í nýsköpun. Tengslanetið KVENN hefur það markmið að gera konur sýnilegri á sviði uppfinninga og frumkvöðlastarfsemi.“Hafa tilnefnt 61 konu Félagið er í nánu norrænu og alþjóðlegu samstarfi með það að markmiði að vekja athygli á nýsköpun kvenna og búa til jákvæðar kvenkyns fyrirmyndir fyrir komandi kynslóðir. Elinóra hefur verið formaður KVENN frá upphafi og hefur tilnefnt 61 íslenska konu til alþjóðlegrar viðurkenningar sem kallast GWIIN. „Tvær þeirra hafa hlotið aðalverðlaunin. Árið 2017 var það dr. Sara Mjöll Jónsdóttir sem fékk verðlaun fyrir að nota blóðvökva, sem fellur til í Blóðbankanum, til að rækta stofnfrumur í. Í ár hlaut Margrét V. Bjarnadóttir aðalverðlaun GWIIN, en nýsköpun Margrétar heitir PayAnalytics sem er hugbúnaðarlausn sem framkvæmir launagreiningar.“ Hugbúnaðarlausnin felst í að skoða áhrif launaákvarðana og ráðast á launabil kynjanna með aðgerðaáætlun og kostnaðargreiningu. „Þessi hátíð kvenna í nýsköpun er haldin annað hvert ár og vonandi getum við haldið hana hér á landi árið 2021.“ Hátíðin var haldin á Íslandi árið 2011, það var fyrsta stóra alþjóðlega hátíðin sem var haldin í Hörpu eftir byggingu hússins.Allt sem þú heyrir hefur áhrif „Með því að veita viðurkenningar og gera fólk sem er uppfinningasamt sýnilegt, þá getum við breytt ímyndinni og gert það meira eftirsóknarvert að virkja hugvitið. Það er nauðsynlegt að gera fólki grein fyrir því að uppfinningar byrja með hugmynd um að leysa tiltekið vandamál eða að gera hlutina öðruvísi, sem sagt að hugsa út fyrir rammann.“ Elinóra segir að uppfinningasemi þurfi ekki að fara eftir menntun, aldri, kyni eða útliti. „Framtakssemi eða áræðni ræður því hvort eitthvað verður úr hugmyndinni.“ Með því að veita viðurkenningar segir Elinóra félagið hvetja fólk áfram. Hvatning og hrós er nauðsynlegt, enda krefjast nýjungar mikillar þolinmæðisvinnu. „Mér verður oft hugsað til sögunnar um froskana sem ákváðu að fara í kapphlaup upp í háan turn. Margir höfðu safnast saman til að horfa á þá og hvetja, en í rauninni trúði enginn að þeir myndu ná þessu markmiði sínu. Þannig fór að einn af öðrum heltist úr lestinni og fólk kallaði til þeirra: „Þetta er allt of erfitt, þið náið þessu aldrei!“ En á endanum var einn eftir sem gafst ekki upp og hann náði á toppinn. Hinir froskarnir vildu fá að vita hvernig stóð á því að hann stóðst allar úrtölurnar og svartsýnina í fólkinu. Jú, í ljós kom að hann var heyrnarlaus. Það sem við getum lært af þessu er að hlusta aldrei á úrtölumenn. Þeir ræna þig draumum þínum sem þú berð í hjarta þér. Allt sem þú heyrir hefur áhrif á það sem þú gerir. Þess vegna segi ég við ykkur sem eigið ykkar draum: Verið bjartsýn og hugsið: Mér mun takast að ná mínu markmiði.“
Birtist í Fréttablaðinu Jafnréttismál Nýsköpun Mest lesið „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Viðskipti innlent Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Viðskipti innlent Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Viðskipti innlent Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Loka Kristjánsbakaríi Viðskipti innlent Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Viðskipti innlent Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Viðskipti innlent Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Sjá meira