Helgafell hagnaðist um 350 milljónir Hörður Ægisson skrifar 29. ágúst 2019 09:00 Jón Sigurðsson stýrir fjárfestingum Helgafells.
Helgafell eignarhaldsfélag, sem er í jafnri eigu Ara Fenger, Bjargar Fenger og Kristínar Vermundsdóttur, hagnaðist um 351 milljón króna í fyrra og dróst hagnaðurinn saman um rúmlega 1.120 milljónir frá fyrra ári, samkvæmt nýbirtum samstæðureikningi fjárfestingarfélagsins. Hagnaður Helgafells á síðasta ári kom einkum til vegna hlutdeildar félagsins í afkomu eignarhaldsfélagsins S121, stærsta hluthafa Stoða, eins stærsta fjárfestingarfélags landsins, en hún nam 377 milljónum króna. Á móti var hins vegar tæplega 200 milljóna króna tap af verðbréfaeign Helgafells en í árslok 2018 nam bókfært virði skráðra verðbréfa félagsins – innlendra og erlendra – samtals um 2,3 milljörðum króna. Helgafell fer með ríflega 28 prósenta hlut í S121 sem á um 65 prósent í Stoðum. Fjárfestingarfélagið Stoðir er á meðal stærstu hluthafa í TM, Símanum og Arion banka. Eigið fé Helgafells nam rúmlega 6 milljörðum króna í lok síðasta árs en í lok þess árs voru einu skuldir félagsins tæplega sex milljóna króna skammtímaskuldir. Sá sem stýrir fjárfestingum Helgafells er Jón Sigurðsson, fjárfestir og stjórnarformaður Stoða, en hann er eiginmaður Bjargar Fenger.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira