Svara Ragnari Þór og VR fullum hálsi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. júní 2019 17:02 Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna vísar fullyrðingum um annarlegan tilgang vaxtabreytinga sjóðsins til föðurhúsanna. Formaður VR hefur verið harðorður í garð stjórnarinnar í kjölfar hækkunar á breytilegum vöxtum um 0,2 prósentustig.Stjórn VR hefur ákveðið að leggja fram tillögu að afturkalla umboð stjórnarmanna VR í Lífeyrissjóði verslunarmanna og skipa nýja stjórn til bráðabirgða. Fulltrúar VR skipa helming stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Ákvörðunin verður tekin á fundi fulltrúaráðs VR á morgun. „Ekki aðeins er tímasetning þessarar ákvörðunar algjörlega óskiljanleg í ljósi þess að blekið á undirskriftum okkar á kjarasamningi er vart þornað heldur hitt að þessi ákvörðun virðist lýsa algjöru skilningsleysi á þeirri miklu áherslu sem verkalýðshreyfingin lagði á vaxtalækkun í mjög erfiðum kjarasamningaviðræðum,“ sagði í tilkynningu frá stjórn VR í dag.Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.Vísir/VilhelmLækkuð og hækkuðu vexti Þessu svarar lífeyrissjóðurinn í yfirlýsingu. Þar kemur fram að fastir verðtryggðir vextir á lánum sjóðsins hafi nýverið verið lækkaðir úr 3,6% niður í 3,4%. Á sama tíma voru breytilegir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána hækkaðir úr 2,06% í 2,26%. „Vextir á stórum hluta lána voru því lækkaðir í takt við þær áherslur sem fram komu í nýgerðum kjarasamningum og með hliðsjón af lækkandi raunvaxtaumhverfi. Stóryrtar yfirlýsingar um að stjórn lífeyrissjóðsins hafi einungis verið að hækka vexti lána, byggja því á afar veikum grunni, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.“ Breytilegir vextir verðtryggðra lána breytast þann 1. ágúst næstkomandi. „Af þeirri einföldu ástæðu að þeir voru bundnir við úrelt viðmið, sem í raun þýddi að vextirnir voru orðnir óeðlilegir. Vaxtaviðmiðið hafði miðast við breytingu á ávöxtunarkröfu ákveðins skuldabréfaflokks hjá Íbúðalánasjóði (HFF150434) en viðskipti með þann flokk höfðu minnkað það mikið að viðmiðið var ekki lengur talið eðlilegt eða raunhæft. Því var ákveðið að miða við ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa og samanburðarhæfra skuldabréfa, ásamt þeim vaxtakjörum sem eru á markaði, að teknu tilliti til áhættumats.“Breytilegir vextir þeir þriðju lægstu Fastir verðtryggðir vextir lána sjóðsins séu nú eftir lækkun úr 3,6% í 3,4% með þeim allra lægstu sem bjóðist á Íslandi. Breytilegir vextir lána hans séu þeir þriðju lægstu á markaði. Á sama tíma sé rétt að minna á að breytilegir vextir, þýða einmitt að þeir séu breytilegir og það eftir aðstæðum hverju sinni. „Sjóðfélagar með réttindi í Lífeyrissjóði verzlunarmanna eru um 170 þúsund talsins. Lántakendur sjóðfélagalána með breytilega verðtryggða vexti eru um 3.700 talsins. Stjórn sjóðsins ber skylda til að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga og ávaxta iðgjöld þeirra með besta mögulega hætti í þeim tilgangi að tryggja þeim sem bestan lífeyri. Það samræmist illa þessari afdráttarlausu skyldu að taka hagsmuni 3.700 lántaka framyfir allan þorra sjóðfélaga með því að festa vexti sem eiga samkvæmt ákvæðum skuldabréfanna að vera breytilegir.“ Ákvarðanir um vaxtabreytingar taki sjóðurinn ætíð með hagsmuni sjóðfélaga og lántakenda að leiðarljósi, aldrei af græðgi, geðþótta, illkvittni eða til að ganga í berhögg við kjarasamninga. „Eftir áðurnefndar breytingar býður Lífeyrissjóður verzlunarmanna afar samkeppnishæf og hagstæð vaxtakjör en sinnir um leið þeirri lögbundnu skyldu sinni að tryggja sem best traustan grunn undir lífeyri tugþúsunda félaga sjóðsins. Yfirlýsingum um annarlegan tilgang eðlilegra vaxtabreytinga er vísað til föðurhúsanna.“
Kjaramál Lífeyrissjóðir Tengdar fréttir VR vill skipta út öllum stjórnarmönnum sínum í Lífeyrissjóði verzlunarmanna Í samþykkt frá stjórn VR segir að vaxtahækkunin sé trúnaðarbrestur við félagið. 19. júní 2019 13:06 Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Erlent Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Erlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent Fleiri fréttir Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Sjá meira
VR vill skipta út öllum stjórnarmönnum sínum í Lífeyrissjóði verzlunarmanna Í samþykkt frá stjórn VR segir að vaxtahækkunin sé trúnaðarbrestur við félagið. 19. júní 2019 13:06