Runólfur skipaður skrifstofustjóri Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. apríl 2019 13:59 Runólfur Birgir Leifsson.
Runólfur Birgir Leifsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri yfir skrifstofu hagmála og fjárlaga í heilbrigðisráðuneytinu til næstu fimm ára. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins þar sem því er bætt við að valið á Runólfi sé í samræmi við mat ráðgefandi nefndar sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda. Það sé t.a.m. mat nefndarinnar að Runólfur hafi „verulega þekkingu og langa og fjölbreytta reynslu á sviði rekstrar.“ Þá hafi hann jafnframt gegnt „ábyrgðarmiklum stjórnunarstörfum og sé með góða þekkingu á opinberri stjórnsýslu.“ Runólfur Birgir er viðskiptafræðingur að mennt og lauk árið 2001 meistaragráðu í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og Viðskiptaháskólanum í Árósum. Runólfur hefur gegnt ýmsum stjórnunarstörfum. Síðastliðin tíu ár hefur hann verið framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Tryggingastofnun ríkisins. Áður vann hann hjá Reykjavíkurborg um árabil, fyrst sem forstöðumaður fjármálasviðs Fræðslumiðstöðvar og síðar sem fjármálastjóri menntasviðs. Hann var framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands í sjö ár, ritari fjárveitinganefndar Alþingis í eitt ár og á árunum 1981-1990 starfaði hann sem sérfræðingur og síðar deildarstjóri fjármála- og tölvudeildar í menntamálaráðuneytinu.
Heilbrigðismál Stjórnsýsla Vistaskipti Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Innlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Erlent Fleiri fréttir Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Sjá meira