Aðkoma ríkisstjórnar: Kynntu 42 aðgerðir til stuðnings lífskjarasamningnum Atli Ísleifsson skrifar 3. apríl 2019 23:21 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. vísir/vilhelm
Ríkisstjórnin kynnti yfirlýsingu sína vegna lífskjarasamninga aðila vinnumarkaðarins á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í kvöld. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að um sé að ræða 42 aðgerðir og að heildarumfang á samningstímabilinu sé 80 milljarðar. Í plaggi stjórnarinnar segir að fæðingarorlof muni lengjast úr níu mánuðum í tíu mánuði í byrjun árs 2020 og í byrjun árs 2021 verði fæðingarorlof tólf mánuðir. Komið verði á fót þriggja þrepa skattkerfi með nýju lágtekjuþrepi. Er miðað við að sú aðgerð auki ráðstöfunartekjur tekjulægsta hópsins um tíu þúsund krónur á mánuði. Þá haldist skattleysismörk föst að raunvirði á innleiðingartímabilinu og að því loknu hækki persónuafsláttur og skattþrep umfram verðbólgu sem nemi framleiðniaukningu. Markvisst verði dregið úr samnýtingu sambúðaraðila á skattþrepum. Segir að samanlagt eigi breytingar á tekjuskattskerfi og barnabótum að geta aukið ráðstöfunartekjur fjögurra manna fjölskyldu um allt að 411 þúsund krónur á ári. Ríkisstjórnin kveðst ætla að ráðast í víðtækar aðgerðir í húsnæðismálum og uppbyggingu félagslegs húsnæðiskerfis. Þá skuli dregið úr vægi verðtryggingar og ný neytendalán miðist við vísitölu án húsnæðisliðar. Ráðast skal í markvissar aðgerðir gegn félagslegum undirboðum Barnabætur verði hækkaðar um 16 prósent og dregið úr skerðingum barnabóta fyrir tekjulægri en skerðingarmörk fara þá frá árinu 2018 úr 242 í 325 þúsund krónur. Þegar kemur að húsnæðismálum segir enn fremur að heimild skuli veitt til að ráðstafa megi 3,5 prósent lífeyrisiðgjalds skattfrjálst til húsnæðiskaupa. Sambúðarfólk með samtals 650.000 í mánaðarlaun gæti svo dæmi sé tekið valið að nýta 273.000 krónur árlega skattfrjálst til öflunar húsnæðis. Unnið skuli að því að óverðtryggð íbúðalán verði valkostur fyrir alla tekjuhópa. Heimild skuli veitt til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á íbúðalán framlengd í tvö ár. Þá segir að ríki og sveitarfélög munu stuðla að verðstöðugleika með því að hækka ekki gjaldskrár umfram 2,5% árið 2020 og minna ef verðbólga er minni.Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti aðgerðir stjórnvalda þegar kemur að úrræðum er varða kaup á fyrstu fasteign.Víðtæk sátt Haft er eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að aðgerðir stjórnvalda og þeir samningar sem nú hafi náðst á vinnumarkaði séu grundvöllur víðtækrar sáttar. Skapi þeir forsendur fyrir bæði félagslegan og efnahagslegan stöðugleika til langs tíma. „Af hálfu stjórnvalda er um að ræða mikilvægar samfélagslegar umbætur, hvort sem um er að ræða réttlátara skattkerfi, uppbyggingu á félagslegu húsnæðiskerfi eða lengingu fæðingarorlofs; allt mun þetta styðja við aukna velsæld alls almennings og aukinn jöfnuð,“ segir Katrín.Ein allra stærstu skattaaðgerð seinni ára Í tilkynningunni á vef forsætisráðuneytisins er haft eftir Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, að stjórnvöld séu í færi til að styðja við ábyrga kjarasamninga vegna styrkrar stöðu ríkissjóðs. „Lækkun tryggingagjalds hefur nýlega verið lögfest og nú verða skattar á launatekjur lækkaðir í áföngum. Til verður nýtt lægra skattþrep sem tryggir mestan ávinning, 10.000 kr. á mánuði, til þeirra tekjulægstu á vinnumarkaði. Það er viðbótar skattalækkun fyrir þennan hóp frá því sem nýlega var kynnt. Heildaráhrifin eru til um 20 milljarða skattalækkunar sem jafngildir um 10% af heildarskattstofninum. Því er um að ræða eina allra stærstu skattaaðgerð seinni ára,“ segir Bjarni.
Efnahagsmál Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Erlent Réðst á lögreglumann í miðbænum Fréttir Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Innlent Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Erlent „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Innlent Fleiri fréttir Engin ástæða til að breyta neinu Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Brosið fer ekki af Hrunamönnum Eldur bak við innstungu reyndist minni háttar Hætta á fölsuðum megrunarlyfjum og leitað í ræturnar Útkall á mesta forgangi vegna kajakræðara í vanda „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Í beinni: Skyndifundur Sjálfstæðismanna á Grand Hotel Alltaf hægt að gera betur á meðferðarheimilunum Menningarverðlaun Árborgar til hjóna á Eyrarbakka Seatrips gert að greiða hundrað milljónir vegna tjóns á flutningaskipi Óskiljanleg lánaviðmið og Grammy-tilnefning stórstjörnunnar Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Happdrætti Háskólans sýknað af tugmilljóna kröfu Catalinu Veittist fyrst að dyravörðum og svo að lögreglumönnum Fluttur á slysadeild eftir hópárás Grunaður um að aka undir áhrifum með börnin aftur í Sótti konuna á lögreglustöðina áður en hann réðst á hana Hrekur Walt-Disney líkingar þingmanns Fjöldi gesta á vellinum myndi takmarkast við 5000 Mikil hætta skapist sé ekið á nýsteypta brúna Nauðguninni flett upp í LÖKE hjá þremur embættum Þyrstir fagna komu jólabjórsins til byggða Fær ekkert greitt því að hann er Íslendingur Óbreytt klukka stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu Bjargey meðferðarheimili: „Þetta var eins og lúxusneyslurými“ „Lúxus-neyslurými“, klukkan umdeilda og tímamót á börum Gallinn varði í átta vikur og tveir komust úr landi Sjá meira