Millifærði fyrir mistök í banka Sigurður Mikael Jónsson skrifar 1. febrúar 2019 06:00 Starfsmaður Landsbankans millifærði af innistæðulausu korti. Vísir/Vilhelm
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært íslenskan karlmann á fimmtugsaldri og íslenska konu á fertugsaldri, bæði búsett í Svíþjóð, fyrir að kasta eign sinni á fjármuni sem millifærðir voru af starfsmanni Landsbankans fyrir mistök. Ákærur á hendur fólkinu birtust í Lögbirtingablaðinu í gær þar sem skorað er á þau að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru og halda uppi vörnum í Héraðsdómi Reykjaness 8. mars næstkomandi. Eru þau ákærð fyrir ólögmæta meðferð á fundnu fé með því að hafa í ágúst 2014 eignað sér ríflega 303.000 krónur. Konan virðist hafa beðið starfsmann Landsbankans um að millifæra upphæðina af Visa-greiðslukorti sínu inn á reikning mannsins, sem starfsmaðurinn hafi fyrir mistök gert. Visa-kort konunnar var hins vegar án innistæðu. Fram kemur að þessi háttsemi varði við 246. gr. almennra hegningarlaga. Er farið fram á að fólkið verði dæmt til refsingar og til að endurgreiða Landsbankanum 303.821 krónu auk vaxta.
Birtist í Fréttablaðinu Dómsmál Íslenskir bankar Mest lesið „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Nýjustu tölur í Hafnarfirði Innlent Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Sjá meira