Jólaútborgun Reykjavíkurborgar „barn síns tíma“ og lögð af Kristín Ólafsdóttir skrifar 8. janúar 2019 11:29 Yfirvinnugreiðslur í desember og eftirágreidd desemberlaun hjá Reykjavíkurborg hafa undanfarin ár verið borguð út 2-4 dögum fyrir jól. Vísir/vilhelm
Starfsmenn Reykjavíkurborgar fengu laun fyrir desembermánuð 2018 greidd 1. janúar en ekki fyrir jól eins og tíðkast hefur lengi hjá borginni. Reykjavíkurborg segir gamla fyrirkomulagið hafa sætt nokkurri gagnrýni enda „barn síns tíma“. Bjarni Brynjólfsson upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar segir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að útborgun desemberlauna tveimur til fjórum dögum fyrir jól hafi í raun verið „arfleið frá þeim tíma þegar laun voru greidd út í reiðufé.“ Hann vísar í tilkynningu um breytinguna frá launadeild borgarinnar sem gerð var aðgengileg á Workplace-svæði starfsmanna og einnig send öllum stjórnendum í tölvupósti. Þeir hafi jafnframt verið hvattir til að kynna breytinguna fyrir starfsfólki sínu. Í tilkynningunni segir að gamla fyrirkomulagið hafi sætt nokkurri gagnrýni, einkum vegna þess hversu langt hafi liðið milli útborgunardaganna, annars vegar í desember og hins vegar í febrúar. „Nokkuð lengi hefur tíðkast hjá Reykjavíkurborg að yfirvinnugreiðslur í desember og eftirágreidd desemberlaun hafa verið borguð út 2-4 dögum fyrir jól. Hefur þetta fyrirkomulag sætt nokkurri gagnrýni, ekki hvað síst þar sem of langt bil verður til næsta útborgunardags sem er 1. febrúar,“ segir í tilkynningu launadeildar. „Fyrirhugað er að framvegis fari framangreind launaútborgun fram um mánaðamót. Það er von kjaradeildar Reykjavíkurborgar að sú tilfærsla verði sem flestum til þægindaauka.“
Borgarstjórn Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira