Sýknaður af því að hafa hótað fjölskyldu hefndaraðgerðum í strætó Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. október 2018 10:45 Samskiptin áttu sér stað í leið 14. Fréttablaðið/ernir
Landsréttur hefur sýknað Kúrda af því að hafa hótað flóttafjölskyldu sem hann kom ólöglega hingað til lands því að þau þyrftu að breyta framburði sínum hjá lögreglu vegna yfirvofandi fangelsivistar mannsins. Hótunin var sögð hafa átt sér er stað er maðurinn hitti fjölskylduna fyrir tilviljun í strætó í Reykjavík.Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu í janúar en þá var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa skipulagt og aðstoðað fjögurra manna fjölskyldu og samlanda mannsins við að koma ólöglega hingað til lands á síðasta ári. Var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa hótað fjölskyldunni í strætó en var manninum gefið að sök að hafa þrýst á að fjölskyldan breytti framburði sínum honum til stuðnings þar sem hann hafi verið handtekinn fyrir að hafa aðstoðað þau við að koma hingað til lands.Handtekinn á leið frá landi Forsaga málsins er sú að maðurinn var handtekinn þann 15. september 2017 er hann var á leið frá landinu eftir að hafa komið með fjölskylduna í flugi frá Kaupmannahöfn tveimur dögum áður. Í tösku hans fundust þýsk kennivottorð flóttamanna, leikföng og fatnaðar en skilríkin voru á nöfnum foreldranna í flóttamannafjölskyldunni sem um ræðir í málinu.Þegar lögregla ræddi við fjölskylduna sögðust þau hafa sótt um hæli í Þýskalandi en fengið synjun. Þau hafi því ákveðið að greiða aðila fé fyrir að fara til Írlands með viðkomu á Íslandi. Annar maður hafi svo fylgt þeim til Íslands. Við skýrslutöku hjá lögreglu sagðist maðurinn ekki þekkja fjölskylduna, hann hafi aðeins verið að aðstoða þau að beiðni vinar hans.Var maðurinn sakfelldur í héraðsdómi fyrir að hafa brotið útlendingalög með því að smygla fjölskyldunni hingað til lands ogstaðfesti Landsréttur þann dóm héraðsdóms á föstudaginn.Landsréttur er staðsettur í Kópavogi en hann tók til starfa í upphafi árs.Vísir/VilhelmSagður hafa hótað fjölskyldunni hefndaraðgerðum í Þýskalandi Maðurinn var sem fyrr segir einnig gefið að sök að hafa hótað fjölskyldunni í strætó. Ólíkar sögur voru hins vegar sagðar af því atviki í héraðsdómi en fjölskyldufaðirinn sagði að maðurinn hefði sagt þeim að hann ætti von á sex ára fangelsisdómi fyrir að hafa aðstoðað fjölskylduna við að koma til Íslands. Sagði fjölskyldufaðurinn að maðurinn hefði sagt þeim að þau yrðu að breyta framburði sínum á þá leið að þau þekktu ekkert til mannsins og hefðu aldrei hitt hann. Ef það yrði ekki gert mættu þau eiga von á hefndaraðgerðum. Var maðurinn sagður hafa sagt að fingraför þeirra væru á skrá í Þýskalandi og hægt yrði að hafa uppi á þeim þegar þau yrðu send til baka og ná þannig fram hefndum. Greindu þau talsmanni sínum frá samtalinu við manninn og hafði talsmaðurinn samband við lögregluna á Suðurnesjum í kjölfarið.Sakfelldur í héraði en sýknaður í Landsrétti Saga mannsins af samskiptunum í strætisvagninum var hins vegar á allt aðra leið. Samskipti þeirra hafi verið vinsamleg og það væri af og frá að hann hafi haft í hótunum við fjölskylduna. Við mat á ákæruliðunum sem tengdust hinum meintu hótunum leit Héraðsdómur til þess að lögreglumaður og talsmaður fjölskyldunnar hafi borið því við að faðirinn og móðirin hafi virst óttaslegin er þau ræddu um samskiptin við manninn í strætisvagninu. Var maðurinn því sakfelldur fyrir að hafa haft í hótunum við fjölskylduna. Var maðurinn dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af voru sex skilorðsbundnir. Landsréttur sýknaði manninn hins vegar af hótununum í strætisvagninum en í dómi Landsréttar segir að miðað við framburð konunnar sem og samferðamanns hins ákærða sé ekkert sem renni stoðum undir það að maðurinn hafi haft í hótunum við fjölskylduna í strætisvagninum. Var það að auki rökstudd með tilliti til myndskeiðs úr strætisvagninum þar sem maðurinn sést ekki sýna af sér ógnandi tilburði né sýni faðirinn og móðirin ótta, hvorki á meðan á samtalinu stóð né eftir að maðurinn hafði yfirgefið vagninn. Var maðurinn því dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa staðið ólöglega að komu fjölskyldunnar hingað til lands en þar af eru tveir mánuðir skilorðsbundnir.Dóm Landsréttar má lesa her.
Dómsmál Strætó Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira