Curry: Heimskulegasta sem ég hef heyrt Arnar Geir Halldórsson skrifar 13. júlí 2018 15:30 Curry er langt frá því að vera saddur vísir/getty
Það er engum blöðum um það að fletta að Golden State Warriors er langbesta lið NBA deildarinnar enda hefur liðið unnið deildina þrisvar á síðustu fjórum árum. Ekki sér fyrir endann á yfirburðum Warriors og vilja margir körfuboltaáhugamenn meina að þeir séu að skemma deildina. Einn allra besti miðherji deildarinnar, DeMarcus Cousins samdi við Warriors á dögunum sem þýðir að liðið mun geta stillt upp byrjunarliði skipað Stephen Curry, Klay Thompson, Kevin Durant, Draymond Green auk Cousins. Vilja margir meina að þarna fari sterkasta byrjunarlið í sögu NBA, í það minnsta á pappírunum en það á eftir að koma í ljós hvernig Cousins fellur inn í meistaraliðið. Hann er langt því frá að vera mesti liðsmaðurinn auk þess sem hann er að jafna sig á alvarlegum meiðslum. Skærasta stjarna Warriors, Stephen Curry, hefur tjáð sig um umræðuna sem er í gangi um Warriors og virðist hafa gaman að henni þó hann telji hana út úr korti. „Það er það heimskulegasta sem ég hef heyrt að við séum að skemma NBA. Ég elska þessa umræðu,“ sagði Curry. „Við erum alltaf að leita að leiðum til að bæta okkur. Ef við myndum bara halla okkur aftur og slaka á eftir að hafa unnið titil myndum við fljótt staðna,“ sagði Curry einnig.
NBA Tengdar fréttir DeMarcus Cousins til Golden State Warriors Virkilega óvænt tíðindi bárust úr NBA deildinni í nótt. 3. júlí 2018 07:22 Mest lesið Uppgjörið: Valur - Stjarnan 3-1 | Valur í úrslit Fótbolti Fimm ástæður þess að Ísland vinni EM Fótbolti „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Íslenski boltinn Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Íslenski boltinn „Auðvitað á þetta að vera svona hjá KSÍ líka“ Fótbolti Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Handbolti Svona var fundurinn fyrir fyrsta leik Íslands á EM Fótbolti Glódís alveg búin að kveðja meiðslin og allar klárar í slag við Finna Fótbolti Biðjast afsökunar á kynningarmyndbandi Fótbolti Opnaði Instagram og sá að hún væri á leiðinni á EM í Sviss Fótbolti Fleiri fréttir Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Sjá meira
DeMarcus Cousins til Golden State Warriors Virkilega óvænt tíðindi bárust úr NBA deildinni í nótt. 3. júlí 2018 07:22