Dró sér tugi milljóna úr dánarbúi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. júlí 2018 17:42 Héraðsdómur Suðurlands er á Selfossi. Fréttablaðið/Pjetur
Guðmundur Jónsson hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt og peningaþvætti. Sem skipaður skiptastjóri dánarbús dró hann sér 53 milljónir úr dánarbúi á þriggja ára tímabili. Brotin áttu sér stað á tímabilinu 7. febrúar 2013 til 7. júní 2016 en fjármunina notaði hann í margvíslegum tilgangi í eigin þágu og í rekstur lögmannstöfu hans. Meðal þess sem hann nýti fjármunina í var greiðslur trygginga, símareikninga, húsaleigu og stöðvunarbrotagjalds. Guðmundur játaði skýlaust brot sín við rannsókn málsins og fyrir dómi og sagðist hann hafa glímt við áfengis- og fíkniefnavanda sem hann hafi nú leitað sér aðstoðar vegna. Þá hafi hann einnig látið af lögmannstörfum. Í dómi Héraðsdóms Suðurlands segir að ekki verði framhjá því litið að Guðmundur hafi dregið sér mikla fjármuni úr dánarbúi sem honum var treyst fyrir sem lögmanni og olli þannig erfingjum búsins verulegu fjártjóni. Því þótti ekki fært að skilorðsbinda refsingu hans og var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi, auk þess sem hann þarf að greiða dánarbúinu fjármunina sem hann dró sér, 53,7 milljónir króna.Dóm Héraðsdóms Suðurlands má lesa hér.
Dómsmál Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira