Hindranir í veginum þó sátt sé í höfn Jóhann Óli Eiðsson skrifar 18. júní 2018 06:00 Zoran Zaev, annar frá vinstri, gaf Alexis Tsipras, starfsbróður sínum, bindi sitt að undirritun lokinni. Vísir/epa
Utanríkisráðherrar nágrannaríkjanna Grikklands og Makedóníu undirrituðu í gær sögulegt samkomulag sem bindur enda á áratuga langa deilu um heiti síðarnefnda ríkisins. Samkvæmt samkomulaginu mun síðarnefnda ríkið, sem kallað hefur verið Fyrrum Júgóslavíulýðveldið Makedónía, heita Norður-Makedónía. Frá því að Júgóslavía liðaðist í sundur hefur verið deilt um nafn Makedóníu. Í Grikklandi hafa menn meðal annars óttast að nágrannarnir í norðri stefni að því að sölsa undir sig Suður-Makedóníu en þar er um að ræða hérað í Grikklandi með um 2,4 milljónir íbúa. Héraðið er innan landamæra hins forna konungsríkis Makedóníu sem Alexander mikli fór fyrir öldum fyrir fæðingu Krists. Deilan hefur meðal annars staðið í vegi fyrir því að Makedóníumenn geti fengið aðild að Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu (ESB). Grikkir eru meðal aðildarríkja beggja og hafa látið það í ljós að Makedóníu verði ekki hleypt inn meðan nafnadeilan er enn óleyst.Sjá einnig: Makedónía fær nýtt nafn eftir 27 ára deilur Lengst af réð ríkjum í Makedóníu flokkur þjóðernissinna sem vildi engan afslátt gefa í deilunni. Eftir þingkosningar í landinu árið 2016 var myndaður nýr meirihluti sem hafði það markmið að ná sáttum. Það tókst í liðinni viku og var samkomulagið formlega undirritað í gær. Líkt og við var að búast eru ekki allir sáttir við sáttina. Þjóðernissinnar beggja landa hafa mótmælt niðurstöðunni á götum úti þar sem þeir telja að með því sé verið að vega að heiðri þeirra. Í fyrradag var borin upp vantrauststillaga á stjórn Alexis Tsipras en forsætisráðherrann stóð hana af sér. Tillagan var lögð fram degi eftir að þingmenn hægri flokksins Gylltrar sólarupprásar kölluðu eftir því að gríski herinn setti stjórnina af þar sem hún hefði gefið of mikinn afslátt af kröfum Grikklands.Þingið og þjóðin Undirritunin fór fram í gríska fiskiþorpinu Psarades, sem stendur við Prespa-vatn, um tíu kílómetrum frá landamærunum að Makedóníu. Grikkinn Nikos Kotzias og Makedóníumaðurinn Nikola Dimitrov undirrituðu sáttina en forsætisráðherrarnir Alexis Tsipras og Zoran Zaev voru viðstaddir ásamt fulltrúum Sameinuðu þjóðanna og ESB. „Þetta er hugrakkt, sögulegt og nauðsynlegt skref fyrir þjóð okkar,“ sagði Alexis Tsipras. Þrátt fyrir að samkomulagið sé í höfn eru enn nokkrar hindranir í vegi þess að það taki formlega gildi. Makedónska þingið þarf að samþykkja niðurstöðuna og síðan þarf að leggja hana í dóm þjóðarinnar sem hefur lokaorðið í þessum efnum. Búist er við því að þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja nafnið muni fara fram snemma á haustmánuðum. Í kjölfarið er nauðsynlegt að hið nýja nafn verði bundið í stjórnarskrá ríkisins að kröfu Grikkja. Til að breyta stjórnarskránni þurfa tveir þriðju hlutar þingmanna að samþykkja breytinguna. 120 þingmenn eru á þinginu og eru 69 þeirra hliðhollir stjórninni. Ellefu þingmenn annarra flokka munu því þurfa að leggja blessun sína yfir breytinguna. Það flækir málið einnig að forseti Makedóníu, Gjorge Ivanov, er svarinn andstæðingur samkomulagsins. Forsetinn hefur vald til að neita að rita undir samkomulagið sem mun þá þurfa að fara aftur fyrir þingið. Samþykki þingið tillöguna öðru sinni hefur forsetinn ekkert um það að segja.
Birtist í Fréttablaðinu Norður-Makedónía Tengdar fréttir Reyna að höggva á Gordíonshnútinn Grikkir og Makedóníumenn eru nálægt því að leysa deiluna um nafn Makedóníu. Nafnið hefur reitt Grikki til reiði frá því stjórnvöld í Skopje lýstu yfir sjálfstæði frá Júgóslavíu og tóku upp hið forna nafn árið 1991. 2. júní 2018 09:00 Makedónía fær nýtt nafn eftir 27 ára deilur Grikkland og Makedónía hafa komist að samkomulagi um opinbert nafn á síðarnefnda ríkinu. Deilur ríkjanna um nafnið hafa staðið í 27 ár, eða alveg frá því að Júgóslavía liðaðist í sundur á tíunda áratug síðustu aldar. 12. júní 2018 23:42 Fjölmenn mótmæli í Aþenu vegna Makedóníu-deilunnar Nokkur hundruð þúsund Grikkir komu saman í miðborg Aþenu í morgun til að mótmæla því sem þeir telja eftirgjöf Grikklandsstjórnar í nafnadeilunni við stjórnvöld í Makedóníu. 4. febrúar 2018 15:45 Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Sjá meira
Reyna að höggva á Gordíonshnútinn Grikkir og Makedóníumenn eru nálægt því að leysa deiluna um nafn Makedóníu. Nafnið hefur reitt Grikki til reiði frá því stjórnvöld í Skopje lýstu yfir sjálfstæði frá Júgóslavíu og tóku upp hið forna nafn árið 1991. 2. júní 2018 09:00
Makedónía fær nýtt nafn eftir 27 ára deilur Grikkland og Makedónía hafa komist að samkomulagi um opinbert nafn á síðarnefnda ríkinu. Deilur ríkjanna um nafnið hafa staðið í 27 ár, eða alveg frá því að Júgóslavía liðaðist í sundur á tíunda áratug síðustu aldar. 12. júní 2018 23:42
Fjölmenn mótmæli í Aþenu vegna Makedóníu-deilunnar Nokkur hundruð þúsund Grikkir komu saman í miðborg Aþenu í morgun til að mótmæla því sem þeir telja eftirgjöf Grikklandsstjórnar í nafnadeilunni við stjórnvöld í Makedóníu. 4. febrúar 2018 15:45