Skoða hundruð flugvéla eftir óhugnanlegt flugslys Kjartan Kjartansson skrifar 20. apríl 2018 23:40 Brot úr hreyflinum brutu glugga þegar hann sprakk. Kona sogaðist næstum því út um gatið. Hún lést af meiðslum sínum. Vísir/AFP
Bandarísk flugmálayfirvöld hafa fyrirskipað skoðun á hreyflum að minnsta kosti 220 flugvéla í kjölfar banaslyss um borð í farþegaflugvél þar sem hreyfill sprakk í vikunni. Kona lést eftir að hún sogaðist næstum út um glugga sem brotnaði af völdum braks úr hreyflinum. Blöð CFM56-7B-hreyfla eins og þess sem sprakk verða skoðuð með ómsjá innan sex mánaða samkvæmt tilskipun Flugmálastofnunar Bandaríkjanna (FAA), að sögn Reuters-fréttastofunnar. Skoðunin nær til hreyfla sem notaðir hafa verið í tilteknum fjölda flugtaka. Aðrir hreyflar sömu tegundar verða skoðaðir á næstu átján mánuðunum. Talið er að blað hafi gefið sig vegna málmþreytu og valdið sprengingunni í hreyfli vélar bandaríska flugfélagsins Southwest Airlines á þriðjudag. Flugfélagið staðfesti í dag að það hefði sent farþegum um borð í vélinni fimm þúsund dollara ávísanir, jafnvirði rúmrar hálfra milljónar íslenskra króna. Þá hefðu þeir fengið inneign í flug hjá félaginu að andvirði þúsund dollara, um hundrað þúsund íslenskra króna. Alls voru 149 farþegar um borð í vélinni sem var á leið frá New York til Dallas. Vélinni var nauðlent í Pennsylvaníu eftir að hreyfillinn sprakk aðeins um tuttugu mínútum eftir flugtak. Dánardómstjóri sagði að konan hefði látist af miklum höggáverkum á höfði, hálsi og búk. Þetta var fyrsta banaslysið í farþegaflugi í Bandaríkjunum í níu ár.
Tengdar fréttir Farþeginn lést af völdum mikilla áverka Konan sem sogaðist næstum út um brotinn glugga farþegaþotu lést af völdum höggáverka á höfði, hálsi og búk. 18. apríl 2018 23:33 Einn lést þegar þotuhreyfill sprakk Fréttir hafa verið um að kona hafi næstum því sogast út úr vélinni, en ekki liggur fyrir hvort að hún sé farþeginn sem lét lífið. 17. apríl 2018 23:15 „Þau segja að það sé gat og einhver hafi farið út“ Kona, sem sogaðist næstum því út um gat á farþegaþotu flugfélagsins Southwest Airlines þegar hreyfill vélarinnar sprakk í gær, er látin. 18. apríl 2018 07:44 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira
Farþeginn lést af völdum mikilla áverka Konan sem sogaðist næstum út um brotinn glugga farþegaþotu lést af völdum höggáverka á höfði, hálsi og búk. 18. apríl 2018 23:33
Einn lést þegar þotuhreyfill sprakk Fréttir hafa verið um að kona hafi næstum því sogast út úr vélinni, en ekki liggur fyrir hvort að hún sé farþeginn sem lét lífið. 17. apríl 2018 23:15
„Þau segja að það sé gat og einhver hafi farið út“ Kona, sem sogaðist næstum því út um gat á farþegaþotu flugfélagsins Southwest Airlines þegar hreyfill vélarinnar sprakk í gær, er látin. 18. apríl 2018 07:44