Erlent

Heilsu Haralds konungs hrakar

Freyja Þórisdóttir skrifar
Haraldur Noregskonungur flutti ræðu á hátíðarkvöldverði í höllinni við opinbera heimsókn íslensku forsetahjónanna í Ósló þann 8. apríl í fyrra.
Haraldur Noregskonungur flutti ræðu á hátíðarkvöldverði í höllinni við opinbera heimsókn íslensku forsetahjónanna í Ósló þann 8. apríl í fyrra. AP

Haraldur Noregskonungur hefur legið inni á spítala í tæplega viku, eða síðan mánudaginn 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms en heilsu hans hrakaði um helgina. Hákon krónprins er ríkisstjóri á meðan hinn 89 ára Haraldur konungur er á sjúkrahúsi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá konungshöllinni en þar segir einnig að „konungurinn fær sýklalyf við bakteríusýkingu í blóði og hefur brugðist vel við þeirri meðferð.“ Ástand hans sé stöðugt en að hann dvelji áfram á spítalanum og sé í veikindaleyfi þar til annað verði tilkynnt.

Glímir við blóðsjúkdóm

Á dögunum var greint frá því í annarri tilkynningu frá konungshöllinni að konungurinn hefði glímt við sjálfnæmisblóðleysi (no. hemolytisk anemi), en það er blóðsjúkdómur þar sem líkaminn byrjar að ráðast á eigin rauðu blóðkorn og eyðileggja þau of hratt.

Vegna sjúkdómsins hafi hann verið meðhöndlaður með kortisóni undanfarnar vikur vegna þessa sjúkdóms, sem hefur valdið vökvasöfnun í líkamanum.

Líkt og fyrr segir er Hákon krónprins ríkisstjóri í fjarveru föður síns en Haraldur hefur verið konungur síðan 1991. Hann og Sonja drottning eiga tvö börn, Hákon krónprins og Mörthu Lovísu prinsessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×