Gríska fríkið óstöðvandi í sigri Bucks | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. mars 2018 07:30 Giannis Antetokounmpo er magnaður. vísir/getty
Milwaukee Bucks vann glæsilegan endurkomusigur á Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 118-110, en liðið var mest 20 stigum undir í leiknum. Bucks varð í nótt fyrsta liðið sem nær að vinna 76ers eftir að lenda meira en fimmtán stigum undir frá því að Oklahoma City gerði það í byrjun mars fyrir þremur árum síðan. Gríska fríkið, Giannis Antetokounmpo, tók leikinn yfir í seinni hálfleik og skoraði fjórtán af 35 stigum sínum í þriðja leikhluta auk þess sem hann tók níu fráköst í heildina og gaf sjö stoðsendingar. Eric Bledsoe hjálpaði til með 22 stigum en Bucks náði með sigrinum að binda endahnút á fjögurra leikja taphrinu liðsins sem er í sjöunda sæti austurdeildarinnar. Dario Saric var manna bestur í liði gestanna með 25 stig og miðherjinn magnaði Joel Embiid skoraði 19 stig og tók að auki átta fráköst. Annars var lítið að frétta úr NBA í nótt þar sem öll helstu liðin og stjörnurnar slökuðu á fyrir framan imbakassann. Victor Oladipo skoraði 33 stig í sigri Indiana gegn Washington og Jrue Holiday skoraði 30 stig í stórsigri Pelicans á Mavericks.Úrslit næturinnar: Atlanta Hawks - Phoenix Suns 113-112 Toronto Raptors - Charlotte Hornets 103-98 Washington Wizards - Indiana Pacers 95-98 Dallas Mavericks - New Orleans Pelicans 109-126 Milwaukee Bucks - Philadelphia 76ers - 118-110 LA Clippers - Brooklyn Nets 123-120 Sacramento Kings - NY Knicks 102-99
NBA Mest lesið Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Enski boltinn Wirtz strax kominn á hættusvæði Enski boltinn Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Enski boltinn Féll fimm metra við að fagna marki Fótbolti „Ætla ekki að segja það í þessu viðtali“ Fótbolti Lést aðeins 39 ára: Bað þjóð sína um hjálp Fótbolti Leik hætt þegar áhorfendur köstuðu heimatilbúnum sprengjum Fótbolti „Magnað að við séum enn að leita í vinskap hvors annars“ Handbolti Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Enski boltinn Martröð á fyrstu æfingu í Róm Fótbolti Fleiri fréttir Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Yfirlýsing KKÍ: Hætta ekki við leikinn við Ísrael Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Nánast allar treyjur uppseldar fyrir EM Erfitt að horfa á félagana detta út Craig Pedersen um erfitt val á EM-hóp: „Frábært vandamál að glíma við“ Forseti Íslands hvatti landsliðið til dáða Giannis loksins mættur en Grikkirnir neita að útskýra fjarveruna Svona er hópur Íslands sem fer á EM Keflavík semur við Breta: „Þekktur fyrir öfluga nærveru í teignum“ Manchester heimsækir Síkið og Tindastóll fer til fjögurra landa Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Khalil Shabazz til Grindavíkur Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Keflavík fær bandarískan framherja Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Sjá meira