Ensa Cosby látin Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. febrúar 2018 07:57 Dætur Bills Cosby; Ensa, Erika og Evin, við veitingu Candace verðlaunanna. Vísir/getty
Ensa Cosby, dóttir leikarans Bill Cosby, er látin. Hún var 44 ára að aldri. Talsmaður fjölskyldunnar segir að hún hafi látist úr nýrnabilun í Massachusetts síðastliðinn föstudag. Ensa Cosby kom einu sinni fram í hinum geysivinsæla þætti föður hennar, The Cosby Show, en síðustu ár hefur hún glímt við alvarleg veikindi. Að sögn bandarískra miðla var hún á biðlista eftir nýju nýra. Ensa stóð þétt við hlið föðursins síðustu misseri þegar hann var ásakaður af tugum kvenna um kynferðislega áreitni og misnotkun. Sendi hún meðal annars frá sér yfirlýsingu þar sem hún sagði að ásakanirnar gegn föður sínum væru byggðar á kynþáttafordómum. „Faðir minn hefur verið tekinn af lífi án dóms og laga,“ sagði meðal annars í orðsendingu hennar til fjölmiðla. Næst verður réttað í máli gegn Bill Cosby í apríl næstkomandi. Þá verður reynt að skera úr um hvort leikarinn hafi brotið kynferðislega gegn konu árið 2004, eftir að hafa byrlað henni ólyfjan. Bill Cosby á þrjú eftirlifandi börn, systurnar Evin, Errin og Eriku. Sonur hans Ennis var myrtur árið 1997.
Andlát Mest lesið Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira