Þegar Haukarnir voru síðast í Höllinni þá stal myrkrið senunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2018 16:45 Haukamaðurinn Kristján Leifur Sverrisson var ekki fæddur þegar Haukarnir voru síðast í Höllinni í janúar 1996. Vísir/Ernir
Haukar mæta í kvöld Tindastól í undanúrslitum Maltbikar karla í körfubolta en í boði er sæti í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Leikurinn í kvöld verður fyrsti bikarleikur karlaliðs Hauka í Laugardalshöllinni í 22 ár eða síðan 28. janúar 1996 þegar liðið vann 85-58 sigur á ÍA í sögulegum bikarúrslitaleik. Það má segja að myrkrið hafi stolið senunni í þessum leik í lok janúar fyrir 22 árum síðan. Glæsilega leikmannakynningin fyrir leik varð nefnilega ansi dýrkeypt. Hálftíma fyrir leik voru aðlljósin slökkt en ætlunin var að lýsa bara upp völlinn með sérstökum ljósum. Þau virkuðu ekki og leikmenn hituðu upp í 40 mínútur í myrkri. Leikmenn voru engu að síður kynntir til leiks en sú kynning tókst ekki vel og var meðal annars kvartað mikið yfir hræðilegri tónlist.Frétt um leikinn í DV.Það tókst hinsvegar ekki að kveikja á aðalljósunum eftir kynninguna. Á endanum þurfti að fá rafvirkja á staðinn til að laga ljósin sem þýddi að leikurinn hófst ekki fyrr en klukkan 16.35 eða rúmum hálftíma og seint. Skagamenn sáu aldrei til sólar í leiknum, kenndu töfinni um og Haukarnir unnu öruggan sigur. Ljósin hafa ekki verið slökkt í Laugardalshöllinni síðan og það má ekki búast við því að menn taki upp á því í kvöld. Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka í dag, var leikmaður liðsins fyrir 22 árum en hann skoraði fjórtán stig í úrslitaleiknum og var þriðji stigahæsti leikmaður Hauka. Fyrirliði liðsins í þessum leik var Jón Arnar Ingvarsson en sonur Jóns, Kári, verður í stóru hlutverki í Haukaliðinu í kvöld.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Fleiri fréttir Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Sjá meira