Draga herlið sitt til baka frá Sýrlandi Atli Ísleifsson skrifar 11. desember 2017 10:29 Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur verið einn helsti bandamaður Bashar al-Assad Sýrlandsforseta á síðustu árum. Vísir/AFP
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur fyrirskipað að Rússar byrji að draga herlið sitt til baka frá Sýrlandi. Rússneska fréttastofan TASS greinir frá því að Pútín hafi í morgun óvænt heimsótt rússneska herstöð í Khmeimim í Sýrlandi þar sem hann tilkynnti þetta. Pútín fundaði í morgun með yfirmanni rússneska herliðsins á svæðinu, Bashar al-Assad Sýrlandsforseta, sem og varnarmálaráðherra Sýrlands. Rússar hafa á síðustu tveimur árum verið einn helsti bandamaður stjórnar al-Assad í baráttu þeirra gegn hryðjuverkasamtökunum ISIS og uppreisnarhópum í landinu. Fyrr í vikunni lýstu Rússar því yfir að tekist hafi að frelsa landsvæði Sýrlands frá liðsmönnum hryðjuverkasamtakanna ISIS. Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights halda því þó fram að liðsmenn ISIS hafist enn við í héraðinu Dayr al-Zawr eða Deir Ezzor. Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, sagði í gær að stríðinu gegn ISIS í landinu væri lokið og að tekist hefði að ná stjórn á öllum landamærum Sýrlands og Íraks. Áttunda samningalotan í friðarviðræðum Sýrlands, undir handleiðslu Sameinuðu þjóðanna, hófust í Genf í morgun.
Mið-Austurlönd Tengdar fréttir Abadi: Stríðinu gegn ISIS í Írak lokið Forsætisráðherra Íraks segir að fullnaðarsigur hafi verið unnin gegn ISIS í landinu. 9. desember 2017 12:48 Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Innlent Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Erlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Innlent Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Erlent Rafmagn komið aftur á í miðbæ Reykjavíkur Innlent Fleiri fréttir Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Sjá meira
Abadi: Stríðinu gegn ISIS í Írak lokið Forsætisráðherra Íraks segir að fullnaðarsigur hafi verið unnin gegn ISIS í landinu. 9. desember 2017 12:48
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent