Tíu sigrar í röð hjá Houston | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. desember 2017 07:16 James Harden og félögum gengur allt í haginn þessa dagana. vísir/getty
James Harden skoraði 26 stig og gaf 17 stoðsendingar þegar Houston Rockets lagði New Orleans Pelicans að velli, 130-123, í NBA-deildinni í nótt. Þetta var tíundi sigur Houston í röð en liðið situr á toppi Vesturdeildarinnar. Svissneski miðherjinn Clint Capela var stigahæstur í liði Houston með 28 stig. Hann hitti úr 13 af 14 skotum sínum. Eric Gordon skoraði 27 stig. Jrue Holiday skoraði 37 stig fyrir New Orleans og E'Twaun Moore var með 36 stig. Golden State Warriors vann sinn sjöunda leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Portland Trail Blazers á heimavelli, 111-104. Kevin Durant skoraði 28 stig, tók níu fráköst, gaf fimm stoðsendingar og varði þrjú skot í liði Golden State sem var án Stephens Curry og Draymons Green í leiknum í nótt. Damian Lillard skoraði 39 stig fyrir Portland. Boston Celtics tapaði óvænt fyrir Chicago Bulls, 108-85, á útivelli. Kyrie Irving lék ekki með Boston í nótt. Enginn leikmaður liðsins skoraði meira en 15 stig. Nikola Mirotic var stigahæstur í liði Chicago með 24 stig. Góðvinur hans, Bobby Portis, skoraði 23 stig.Úrslitin í nótt: Houston 130-123 New Orleans Golden State 111-104 Portland Chicago 108-85 Boston Memphis 82-107 Miami Oklahoma 103-116 Charlotte LA Clippers 96-91 Toronto
NBA Mest lesið Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Körfubolti Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Fótbolti Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Fótbolti Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Fótbolti „Ég var bara með niðurgang“ Fótbolti Skórnir hennar seldust upp á mínútu Körfubolti Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Fótbolti Dagskráin: Meistararnir mæta í Mosfellsbæ og Orkumótið í Eyjum Sport Fleiri fréttir Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Sjá meira