Stockton náði þessu árið 1996 en svo enginn fyrr en LeBron James í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2017 22:15 LeBron James og John Stockton. Vísir/Samsett/Getty
LeBron James hefur verið ennþá duglegri en vanalega að mata liðsfélaga sína í NBA-deildinni á þessu tímabili og enn eitt dæmið um það var leikur á móti Atlanta Hawks síðustu nótt. LeBron James gaf 17 stoðsendingar í leiknum og hefur aldrei gefið fleiri stoðsendingar í einum leik í NBA-deildinni. James skoraði líka ellefu körfur sjálfur í leiknum og hitti úr 85 prósent skota sinna. Hann varð með því fyrsti NBA-leikmaðurinn síðan í mars 1996 sem skorar að minnsta kosti tíu körfur í viðbót við það að hitta úr meira en 80 prósent skota sinna og gefa meira en fimmtán stoðsendingar. Síðastur til að ná þessu á undan LeBron James var Utah Jazz leikstjórnandinn John Stockton.LeBron James: first player to make at least 10 shots, shoot BETTER than 80% from the field AND record at least 15 assists in a game since John Stockton against the Rockets in March 1996. pic.twitter.com/uJIMop6VnX — ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) December 13, 2017 Í leik á móti Houston Rockets í marsmánuði 1996 þá var John Stockton með 25 stig, 15 stosðendingar og 91 prósent skotnýtingu (11 af 12). Í nótt var LeBron James með 25 stig, 17 stoðsendingar og 85 prósent skotnýtingu (11 af 13). LeBron James hefur gefið 9,0 stoðsendingar að meðaltali í leik en hann var með 8,7 stoðsendingar í leik í fyrra og 6,8 stoðsendingar í leik tímabilið 2015-16. Hann er með 7,1 stoðsendingu að meðaltali í leik á ferlinum. LeBron James hefur líka hækkað stigaskor sitt á milli ára en hann hefur skorað 28,2 stig í leik í vetur en var með 26,4 stig í leik á 2016-17 tímabilinu.
NBA Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira