Týndir smalar og slasaður fjórhjólamaður Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. október 2017 21:48 Björgunarmenn að störfum. Mynd tengist frétt ekki beint. Vísir/Ernir
Rétt fyrir níu í kvöld voru björgunarsveitir frá Vesturlandi, Ströndum, Vestfjörðum og sveitir við Húnaflóa, boðaðar út vegna týndra smala í Selárdal á Ströndum. Þeir höfðu ekki skilað sér á réttum tíma til byggða. Fyrstu hópar fóru úr húsi klukkan níu og rétt fyrir hálf tíu voru mennirnir tveir fundnir heilir á húfi. Sautján björgunarsveitir voru boðaðar út og voru fleiri hópar á leið á svæðið Fimmtán mínútum eftir að fyrstu sveitir voru boðaðar út vegna týndu smalanna á Ströndum, voru sveitir á Norðausturlandi boðaðar út vegna annars manns sem hafði fallið af fjórhjóli og er hann talinn slasaður. Fyrstu hópar eru að nálgast vettvang, en maðurinn er blautur og kaldur. Um tíu í kvöld voru sjúkraflutningamenn, björgunarsveitafólk og læknir komnir að manninum sem slasaðist eftir fall af fjórhjóli á Norðausturlandi. Leiðin að slysstað er erfið yfirferðar og seinfær, þess vegna þurfti breytta jeppa og sexhjól til að komast á slysstað. Björgunarsveitarfólk og aðrir viðbragðsaðilar eru að hlúa að manninum á meðan beðið er flutnings.
Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Fleiri fréttir Ræst út af öllum stöðvum vegna reyks í Asparfelli Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Sjá meira