Sonur Hjalta berrassaður í yfirheyrslu Jakob Bjarnar skrifar 11. ágúst 2017 14:08 Feðgarnir Árni og Hjalti sem segir son sinn saklausan og lýsir makalausu máli, eins og það horfir við honum. Hann ætlar lengra með málið og alla leið ef þarf.
Hjalti Úrsus Árnason aflraunamaður ber lögreglu og saksóknara þungum sökum og talar um að framið hafi verið dómsmorð á syni hans. Árni Hjaltason var nýverið dæmdur í héraði til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps. Hjalti segir rannsókn málsins furðu sæta. Og átti von á allt öðru dómsorði. Hann segir lögregluna og dómsvaldið einfaldlega hafa verið búið að ákveða niðurstöðuna fyrirfram. „Ég hélt að hann væri bara að koma heim og við værum að fara að grilla,“ segir Hjalti sem furðar sig á rannsókninni og dómnum sem hann segir engu vatni halda. Hjalti fór yfir þetta í ítarlegu viðtali í útvarpsþættinum Harmageddon nú í morgun.Hjalti fer þar yfir ýmsa þætti málsins sem hann segir ekki standast neina skoðun. Hann segir manninn sem Árni átti í átökum við sem leiddu svo til þess að hann var kærður og dæmdur fyrir tilraun til manndráps ítrekað hafa breytt framburði sínum. Hjalti lýsir að hafa átt í samtali við lögreglumann sem hann kallar Leif, sem hafi viðurkennt að þetta væri ótrúverðugt en það breyti öllu að brotaþoli, Aron, hafi verið edrú en sonur Hjalta ekki.Ef Árni ætlar sér að drepa einhvern þá verður morð Hjalti hins vegar lýsir því sem lesa má í dómsskjölum að saksóknari hafi spurt brotaþola hvernig ástandið hafi verðið á honum og þá segist hann hafa verið búinn að setja í sig pillur, amfetamín og áfengi. Hins vegar hafi sonur hans verið edrú, þó vissulega hafi hann verið í neyslu á þessu tímabili. „Ég ætla ekki að útiloka að hann hafi fengið þetta sár við að ráðast á Árna. En, lykilatriði er að Árni hafi haft hann undir, setið á honum og hann hafi komist undan. Staðreynd málsins er þessi, og ég hefði viljað að þetta hefði verið sett upp í réttarhöldunum: Árni, sestu á Aron. Aron, sýndu okkur hvernig þú komst undan,“ segir Hjalti sem lýsir syni sínum sem sérþjálfuðum í brasilískum bardagalistum, hann sé 2,05 á hæð og 180 kíló.Maður með þessa líkamlegu yfirburði... það verður ekki morðtilraun ef Árni ætlar sér að drepa einhvern, það verður morð. Maður svona stór, ef hann ætlar sér eitthvað.Yfirheyrslan engin tískusýning Þetta er aðeins eitt af mörgu sem Hjalti segir orka tvímælis. Þá hefur hann eitt og annað út á meðhöndlun lögreglunnar á syni sínum að setja. Útvarpsmaðurinn Frosti Logason, sem sett hefur sig inn í málið og telur það hið undarlegasta, spyr Hjalta út í það atriði. Að Árni sonur hans hafi verið leiddur berrassaður fyrir dómara af því að það átti að fara að rannsaka fötin hans, en það var aldrei rannsakað heldur? „Nei, það lá svo mikið á að koma fötum hans í rannsókn að hann er yfirheyrður þarna um morguninn nakinn, eða í götóttum nærbuxum, og hann er spurður: er ekki allt í góðu lagi með þetta allt saman? Nei, mér líður eins og hálfvita, ég er hér nakinn og hér eru myndavélar. Þá segir lögreglukonan: Þetta er nú ekki tískusýning. Þetta er skjalfest. Leiddur líka nakinn fyrir dómara. Hann hefur átt við ákveðin vandamál að stríða og þarf á lyfjum að halda. En honum var hent í einangrun á Litla Hrauni, á nærbuxunum, í viku.“ Hjalti Úrsus lýsir því einnig yfir, í tilvitnuðu útvarpsviðtali, furðu sinni á því að brotaþola hafi verið dæmdar skaðabætur sem nema 500 þúsund krónum. Hvernig það megi vera að maður sem er búinn að ljúga ítrekað, breyta framburði sínum, fylla sig af amfetamíni og áfengi, mætir á vettvang með hníf sem er á við sveðju, feli svo hnífinn sem aldrei hefur fundist, fái dæmdar skaðabætur?Lofað helmingi væntanlegra bóta Þá lýsir Hjalti því jafnframt að stúlka sem dópuð bar vitni sem allt málið grundvallist á, hafi fengið loforð um að fá helming þeirra bóta ef hún breyti ekki röngum framburði sínum. Þá hafi hún gert sér grein fyrir alvarleika málsins, breytt framburði sínum en lögreglan vildi ekkert hafa með það að gera. Því niðurstöðuna var búið að ákveða. Hjalti segist hingað til hafa haft trú á réttarkerfinu, hann eigi marga kunningja innan lögreglunnar sem sé frábært fólk. En einhvers staðar hafi verið ákveðið að sonur hans yrði dæmdur hvað sem tautar og raular. Málinu verði áfrýjað og farið með það eins langt og hægt er. Því ekki sé hægt að búa við annað eins og þetta.
Tengdar fréttir Tilraun til manndráps: Þrjár manneskjur, þrjár sögur og hnífurinn sem hvarf Vísir greindi frá því í dag að Árni Gils Hjaltason hefði verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa stungið mann í höfuðið við Leifssjoppu í Breiðholti þann 5. mars síðastliðinn. 9. ágúst 2017 19:42 Fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps fyrir utan Leifasjoppu Árni Gils Hjaltason hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. 9. ágúst 2017 16:33 Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira
Tilraun til manndráps: Þrjár manneskjur, þrjár sögur og hnífurinn sem hvarf Vísir greindi frá því í dag að Árni Gils Hjaltason hefði verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa stungið mann í höfuðið við Leifssjoppu í Breiðholti þann 5. mars síðastliðinn. 9. ágúst 2017 19:42
Fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps fyrir utan Leifasjoppu Árni Gils Hjaltason hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. 9. ágúst 2017 16:33