Fyrrum stjóri Cleveland: Kyrie Irving sýndi hugrekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2017 11:00 Kyrie Irving. Mynd/Getty
David Griffin, fyrrum framkvæmdastjóri Cleveland Cavaliers er á því að Kyrie Irving hafi farið rétt að þegar hann bað um það að losna frá einu besta liði NBA-deildarinnar í körfubolta. Kyrie Irving og félagar Cleveland Cavaliers fóru í lokaúrslitin þriðja árið í röð í júní en urðu að sætta sig við tap á móti Golden State Warriors í annað skiptið á þremur árum. Það kom síðan eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar aðalleikstjórnandi liðsins vildi í burtu og það fylgdi sögunni að Kyrie Irving vildi losna undan skugga LeBrons James. Ákvörðun Irving hefur verið gagnrýnd af leikmönnum í NBA-deildinni enda vilja þeir flestir vera í liði sem fá að spila í júní. „Hann stóð að þessu eins og hann átti að gera. Hann fór til eigandans og sagði honum undir fjögur augu að hann yrði ánægðari ef hann fengi að spila annarstaðar,“ sagði David Griffin í þættinum The Jump á ESPN. „Það allra versta sem þessi gæi hefði gert hefði verið að láta eins og allt væri í lagi en sökkva svo skipinu innanfrá. Flestir hafa ekki það hugrekki sem hann sýndi,“ sagði Griffin. Griffin býst við að Cleveland skipti á Irving á endanum því það væri það besta í stöðunni fyrir báða aðila. „Ég sé fyrir mér að hann finni sér stað sem passi honum og hjálpi honum að taka næsta skref á ferlinum. Hann vill sjá hversu góður hann getur orðið,“ sagði Griffin. „Lebron varpar mjög stórum skugga yfir sitt lið og að stærstum hluta er það mjög jákvætt. Eitt af því að það er ætlast til þess að liðið berjist um titilinn. Það gefur hinsvegar oft leikmönnum eins og Kyrie tækifæri til að sjá hversu langt þeir komast eða að komast að því hversu góðir þeir geta orðið,“ sagði Griffin.
NBA Mest lesið BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Haaland og Ödegaard báðir á bekknum gegn Frakklandi Fótbolti Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira