Óalgengt að þolendur kynferðislegrar áreitni á vinnustað leiti aðstoðar Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. júlí 2017 12:39 Nýlega tóku gildi nýjar reglur sem ganga lengra í að verja starfsmenn gegn áreiti en áður. Vísir/Getty
Óalgengt er að þolendur kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldis á vinnustað leiti sér aðstoðar. Auka þarf umræðu um áreitni í samfélaginu að mati BSRB en nýlega tóku gildi nýjar reglur sem ganga lengra í að verja starfsmenn gegn áreiti en áður. Í fréttabréfi BSRB, sem sent var út í dag, kemur fram að afleiðingar áreitni og ofbeldi af kynferðislegum toga á vinnustað geti verið margs konar. Þá er óalgengt að þolendur áreitninnar leiti sér aðstoðar. „Afleiðingar af áreitni og ofbeldi af þessu tagi geta verið ýmiskonar, bæði fyrir einstaklingana sem verða fyrir því, fyrir vinnustaðina og samfélagið í heild. Áhrif á einstaklingana geta til dæmis komið fram í verri heilsu, streitu, þunglyndi, niðurlægingu og pirringi. Þá getur áreitni og ofbeldi haft í för með sér tekjutap fyrir þá sem fyrir því verða.“ Þá leggja samtökin áherslu á að gagnkvæm virðing á vinnustað sé sjálfsagður réttur alls launafólks og að starfsmenn eigi að njóta skilyrðislausrar verndar fyrir kynbundinni kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. „Nýlega tóku gildi nýjar reglur sem ganga lengra í að verja starfsmenn en áður. Þannig er það til að mynda skylda vinnuveitenda að vernda starfsmenn sína fyrir áreiti af hendi þriðja aðila, til dæmis viðskiptavina. Þá verða vinnuveitendur að bregðast við til að tryggja góða líðan starfsmanna þegar kvartað er yfir áreiti, hvort sem niðurstaða athugunar leiðir í ljós að um áreiti hafi verið að um áreiti hafi verið að ræða eða ekki,“ segir í fréttabréfinu. Þá er bent á bækling BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, Jafnréttisráðs og Jafnréttisstofu þar sem farið er yfir ýmis atriði tengd kynbundinni og kynferðislegra áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Kourani farinn úr landi Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira