Tyrkir hóta að afturkalla ríkisborgararétt hundruða Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. júní 2017 11:31 Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti. Vísir/AFP
Tyrknesk yfirvöld gáfu í dag út yfirlýsingu þar sem þau segja að þau muni afturkalla ríkisborgararétt um 130 ríkisborgara sem staddir eru erlendis og þau saka um að tengjast hryðjuverkasamtökum, nema þeir aðilar komi heim til Tyrklands innan þriggja mánaða. Reuters greinir frá. Þeirra á meðal er Fethullah Gulen, sem tyrknesk yfirvöld hafa alla tíð sakað um að hafa verið einn af forsprökkum valdaránstilraunarinnar sem gerð var þann 15. júlí í fyrra. Þá reyndi hluti hersins að velta Erdogan forseta landsins úr stóli. Gulen hefur búið í Bandaríkjunum frá árinu 1999 og þvertekur fyrir að hafa komið nálægt valdaránstilrauninni. Tyrknesk yfirvöld hafa handtekið 50 þúsund manns og rekið 150 þúsund manns úr opinberum stöðum, svo sem eins og hermenn, lögreglumenn, kennara og starfsmenn opinberra stofnanna, sem þau saka um að tengjast valdaránstilrauninni. Fyrr á árinu samþykktu Tyrkir með naumindum að veita forsetaembættinu meiri völd á kostnað þingsins og sóttist Erdogan Tyrklandsforseti eftir þeim breytingum vegna þess sem hann sagði aukna ógn við Tyrkland og var umrædd valdaránstilraun ítrekað notuð sem dæmi um þá ógn.
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Sjá meira