Leggja til að hækkanir á fæðisgjaldi verði dregnar til baka Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. apríl 2017 15:51 Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina. Vísir/Valli
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina í borgarráði, lagði til á fundi ráðsins í dag að hækkanir á fæðisgjaldi sem lagt var á síðasta haust verði dregnar til baka. Var þetta lagt til í ljósi rekstrarniðurstöðu borgarinnar sem var jákvæð um 26 milljarða en ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir 2016 var kynntur á fundi borgarráðs í dag. Í tillögu Framsóknar og flugvallarvina segir: „Ljóst er að ársreikningur sem verið er að leggja fram nú gefur svigrúm til slíkts. Þá lögðum við fram þá tillögu að hækkanir velferðarssviðs sem samþykktar voru í desember 2016 umfram raun hækkanir vísitölu verði einnig látnar ganga til baka.“ Þá segir jafnframt að ljóst sé að íbúar borgarinnar hafi tekið á sig hækkanir langt umfram verðlag og komið þannig til móts við sveitarfélagið þegar hart hafi verið í ári. Þeir eigi núna að njóta þess þegar betur gengur. Fæðisgjald í leik-og grunnskólum borgarinnar hækkaði um 100 krónur á dag frá og með 1. október síðastliðnum. Breytingin hafði það í för með sér að fæðisgjald vegna barna í leikskóla sem eru skráð í sjö til níu klukkustundir á dag hækkar úr 8.320 krónum á mánuði í 10.480 krónur á mánuði. Þá hækkaði verð fyrir máltíðir nemenda í grunnskólum borgarinnar úr 7.100 krónum í 9.270 á mánuði.
Mest lesið „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent Fleiri fréttir „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Aðstoðuðu tvö skip í vanda á Breiðafirði Gjöld fyrir frístund rokið upp Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Þetta er stefna flokkanna í Reykjavík í skipulags- og húsnæðismálum Skjálfti að stærð 3,6 á Mosfellsheiði Sjá meira