Pepsi-spáin 2017: FH hafnar í 1. sæti Íþróttadeild 365 skrifar 30. apríl 2017 08:00 FH-ingar fagna áttunda Íslandsmeistaratitli sínum. vísir/anton
Íþróttadeild 365 telur niður í Pepsi-deild karla með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 30. apríl en þar á FH titil að verja eftir að hafa orðið meistari í áttunda sinn í sögu félagsins í fyrra. Íþróttadeild 365 spáir FH 1. sæti deildarinnar í ár sem þýðir, að ef spáin rætist, vinnur FH Íslandsmótið þriðja árið í röð í annað sinn í sögunni og fagnar sínum níunda Íslandsmeistaratitli síðan 2004. FH-liðið hefur borið höfuð og herðar yfir önnur lið síðustu þrettán árin og á þeim tíma aldrei hafnað neðar en í öðru sæti. Þjálfari FH er Heimir Guðjónsson sem kom sem leikmaður til FH árið 2000 og hefur verið þar síðan. Hann byrjaði sem leikmaður, varð svo aðstoðarþjálfari og síðar þjálfari en hann tók einn við árið 2008. Hann hefur komið að öllum átta Íslandsmeistaratitlum FH og unnið fimm þeirra sem aðalþjálfari. Mögulegt byrjunarliðvísirFH-ingar eiga tvo stórleiki í fyrstu fimm umferðunum á móti Val og KR á útivelli þannig ekki fá meistararnir þægilegustu byrjunina. Aftur á móti byrja þeir á móti Skaganum og eiga einnig leiki við KA og Fjölni heima sem eru leikir sem FH vinnur ef allt er eðlilegt. El Clásico Íslands, KR-FH, er á dagskrá í fimmtu umferð. Enn eitt árið er þetta of snemma en þó skárra en í fyrstu umferð eins og fyrir tveimur árum.30. apr: ÍA – FH, Norðurálsvöllurinn08. maí: FH – KA, Kaplakrikavöllur15. maí: Valur – FH, Valsvöllur22. maí: FH – Fjölnir, Kaplakrikavöllur28. maí: KR – FH, Alvogenvöllurinn Þrír sem FH treystir áGunnar Nielsen, Bergsveinn Ólafsson og Kristján Flóki Finnbogason.vísir/ernirGunnar Nielsen: Færeyski landsliðsmarkvörðurinn er einn sá allra besti í deildinni ef ekki einfaldlega sá besti. Fyrir aftan sterka vörn FH-liðsins fékk hann aðeins 17 mörk á sig á síðustu leiktíð en hann varði oft á tíðum úr algjörum dauðafærum. FH er að spila öðruvísi leikkerfi núna, 3-4-3, sem það er enn þá að slípa til og því þarf Gunnar áfram að vera á tánum og verja eins og hann gerði í fyrra.Bergsveinn Ólafsson: Miðvörðurinn kom frá Fjölni í fyrra og sannaði á fyrstu leiktíð að hann á heima í besta liði landsins. Hann spilaði virkilega vel og átti stóran þátt í því að FH varð Íslandsmeistari tiltölulega auðveldlega. Nú er FH að spila með þrjá miðverði en samt er hann oft eini alvöru miðvörðurinn af þeim þremur þar sem sú staða er þunnskipuð hjá FH og Doumbia verið meiddust. Bergsveinn gæti þurft að taka enn meiri ábyrgð í sumar.Kristján Flóki Finnbogason: Framherjinn var mjög lengi í gang síðasta sumar en var byrjaður að skora undir lok móts. Það hefur hann tekið með sér inn í veturinn en Flóki raðaði inn mörkum á undirbúningstímabilinu. Þessi hæfileikaríki leikmaður þarf að skora miklu meira en í fyrra en markaskorun var ekki mikil hjá FH sem treysti bara á vörnina og skoraði aðeins 32 mörk.Nýstirnið Grétar Snær Gunnarsson er strákur fæddur árið 1997 sem hefur verið að fá spilmínútur á undirbúningstímabilinu en hann verður vafalítið í mjög litlu hlutverki í sumar og gæti þess vegna farið á lán. FH-ingar eru ekkert í því að kaupa einhverja gosa en til liðsins eru komnir tvær Stjörnur í Halldóri Orra og Veigari Páli. Engin nýstirni þar á ferð. MarkaðurinnHalldór Orri vildi ólmur ganga í raðir FH.vísir/vilhelmKomnir: Guðmundur Karl Guðmundsson frá Fjölni Halldór Orri Björnsson frá Stjörnunni Robbie Crawford frá Skotlandi Veigar Páll Gunnarsson frá Stjörnunni Vignir Jóhannesson frá SelfossiFarnir: Brynjar Ásgeir Guðmundsson í Grindavík Hörður Ingi Gunnarsson í Víking Ó. á láni Jeremy Serwy til Belgíu Kaj Leo í Bartalsstovu í ÍBV Kristján Finnbogason hættur Sam Hewson í Grindavík FH-ingar eru ekkert í því að kaupa einhverja gosa en til liðsins eru komnir tvær Stjörnur í Halldóri Orra og Veigari Páli. Engin nýstirni þar á ferð. Halldór Orri hefur ekki náð sama flugi eftir að hann kom úr atvinnumennsku og hann var á áður en hann fór út og óvíst er hversu mikið er eftir á tankinum hjá Veigari Páli. Annað árið í röð sömdu FH-ingar við fyrirliða Fjölnis. Guðmundur Karl er afar fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður. Crawford er 23 ára miðjumaður sem er uppalinn hjá skoska stórveldinu Rangers. Hann hefur farið vel af stað í búningi FH og mun styrkja liðið. Vignir var fenginn til að vera varamarkvörður fyrir Gunnar eftir að Kristján Finnbogason lagði skóna á hilluna. Serwy og Kaj Leo sýndu lítið síðasta sumar og það verður ekki mikill söknuður að þeim. Brynjar Ásgeir og Hewson voru inn og út úr byrjunarliðinu í fyrra og fóru til Grindavíkur þar sem þeir verða í stærri hlutverkum. Hvað segir Hjörvarvísir/pjetur„Mér finnst mjög líklegt að FH verði Íslandsmeistari,“ segir Hjörvar Hafliðason, sérfræðingur Pepsi-markanna, um FH. „Eins og staðan er í dag er FH að fara að spila með þrjá miðverði en eiga bara einn heilan miðvörð. Ég geri fastlega ráð fyrir því að þeir bæti við sig miðverði áður en langt um líður.“ „Ef við horfum frá vörninni inn á miðsvæðið og fram eiga þeir alveg ótrúlegt magn af leikmönnum. Breiddin sé mest þar.“ „Það reyndi rosalega lítið á FH í fyrra. Þetta var auðveldur Íslandsmeistaratitill fyrir þá að vinna. Þeir skoruðu lítið af mörkum en fengu fá mörk á sig.“ „Ef allt er eðlilegt er það mín skoðun að FH verður Íslandsmeistari í haust,“ segir Hjörvar. Að lokumHeimir hefur gert FH fimm sinnum að Íslandsmeisturum.vísir/hannaÞað sem við vitum um FH er ... að liðið er gríðarlega vel mannað fyrir utan kannski í miðvarðastöðunum. Breiddin í liðinu er ógnvænleg og magnið af miðjumönnum og sóknarmönnum sem gætu byrjað fyrir öll önnur lið deildarinnar er svakalegt. Þjálfarinn er sá besti á landinu, umgjörðin sú flottasta og sigurhefðin orðin gríðarleg. FH er best mannaða lið landsins og á að verða Íslandsmeistari.Spurningamerkin eru ... breiddin í vörninni. Liðið er aðeins með tvo miðverði, Bergsvein Ólafsson og Kassim Doumbia, en er á höttunum eftir þeim þriðja. FH gæti byrjað með tvo bakverði við hliðina á Bergsveini í hjarta varnarinnar og eiga leiki á móti KR og FH í fyrstu umferðunum.Atli Guðnason er í stóru hlutverki hjá FH eins og undanfarin ár.vísir/eyþórÍ besta falli: Heldur FH áfram að vera FH. Varnarleikurinn verður jafn traustur og alltaf og Gunnar Nielsen frábær í markinu. FH heldur áfram að murka lífið úr litlu liðunum og halda öllum keppinautum sínum í eltingarleik nánast frá fyrstu umferð. Ef allt er eðlilegt hjá FH verður liðið meistari þriðja árið í röð.Í versta falli: Byrjar FH illa út af vandræðunum í vörninni og menn fara að vera sérstaklega pirraðir á bekknum vegna lítils spiltíma. Reyndar leysir Heimir Guðjónsson það alltaf mjög vel. Það er fátt sem getur komið upp á hjá FH þannig ef liðið verður ekki meistari lendir það væntanlega í öðru sæti eins og undanfarin þrettán ár.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Enski boltinn Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Enski boltinn Glódís mætti ekki á æfingu Fótbolti Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga Fótbolti EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Fótbolti Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Handbolti Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti Stefán vann í stað Arnars Sport Fleiri fréttir Í beinni: Afturelding - Breiðablik | Heimamenn vilja hefna tapið í opnunarleiknum Varð fullorðinn úti „Reisn“ yfir ákvörðun Jóns Daða sem gaf stórliðunum langt nef „Eitt það versta sem ég hef séð síðustu ár“ „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Ætla skrefinu lengra: „Menn muna þá tilfinningu vel“ Skellihlegið í Stúkunni: Svipuð nærvera og þegar Bjössi hitti Karabatic í Lindex Stúkan: Átti annað mark ÍA að standa og hver skoraði? Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin Uppgjörið: Víkingur - Afturelding 2-1 | Víkingar sluppu með skrekkinn Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra Uppgjörið: Fram - ÍBV 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Hverju breytir Lárus Orri hjá Skagaliðinu? Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Fyrsti sigur Fylkismanna í fimmtíu daga Sjáðu markaveislu Valsmanna og varamannaþrennu Kristófers bjarga Blikum Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Sjá meira