Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Árni Gísli Magnússon skrifar 27. júní 2025 20:25 Valsmenn voru í stuðu á Akureyri í kvöld og hafa skorað flest mörk allra liða í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Diego Valsmenn gerðu góða ferð til Akureyrar með 5-2 sigri á KA í þrettándu umferð Bestu deildar karla í dag. Valur er áfram í 3. sæti deildarinnar á meðan KA er í fallsæti, því ellefta, og hafa nú tapað þremur leikjum í röð Valsmenn byrjuðu leikinn mun betur og komust yfir eftir tíu mínútna leik. Hrannar Björn Steingrímsson gerðist þá sekur um slæma sendingu til baka sem fór beint fyrir fæturnar á Lúkasi Loga Heimissyni sem renndi boltanum áfram á Adam Ægi Pálsson sem renndi boltanum í autt markið. KA menn virtust ekki vakna við þetta mark og strax í næstu sókn átti Lúkas Logi hörkuskot sem endaði í stönginni. Það leið svo ein mínúta þangað til Valsmenn tvöfölduðu forystu sína. Adam Ægir Pálsson tók hornspyrnu frá hægri og náði Markus Nakkim að fleyta boltanum áfram af nærsvæðinu þar sem boltinn hrökk svo af Ásgeiri Sigurgeirssyni og í eigið mark. Áfram héldu Valsmenn að herja á þá gulklæddu og komst Patrick Pedersen einn gegn markmanni og átti skot sem Jakob Snær renndi sér fyrir á elleftu stundu og bjargaði mögulega marki. Leikurinn róaðist svo aðeins og Valsmenn héldu boltanum innan liðsins en KA gekk illa að ná sínum leik upp og virkaði lítið að reyna setja hann langan fram þar sem sóknarmaður KA var oft einn gegn fjölmörgum varnarmönnum Vals sem endaði aðeins á einn veg. KA tókst þó að minnka muninn í uppbótartíma hálfleiksins þegar Bjarni Aðalsteinsson átti gott skot fyrir utan teig eftir að Rodri lagði boltann fyrir hann. Staðan 2-1 í hálfleik. Heimamenn komu beittari til leiks í síðari hálfleik en voru ekki að skapa sér nægilega góð færi. Það var því svekkjandi fyrir þá þegar Valsmenn komu boltanum í netið eftir hornspyrnu þar sem Tómas Bent Magnússon potaði boltanum inn á fjærstönginni og skoraði sitt annað mark í jafnmörgum leikjum. Allur vindur virtist úr KA liðinu við þriðja markið og nýttu gestirnir sér það með því að bæta öðru marki við strax í næstu sókn. Sigurður Egill lyfti boltanum inn fyrir vörn KA í hlaupið hjá Albin Skoglund, sem hafði komið inn á fjórum mínútum áður, og hann setti boltann laglega yfir William Tönning í marki KA sem fór í illa tímasett úthlaup. Á 85. mínútu kom Stefán Gísli Stefánsson inn á fyrir Valsmenn og á innan við hálfri mínútu var hann búinn að skora fimmta mark Vals með sinni fyrstu snertingu. Boltinn hrökk þá fyrir hann eftir smá atgang í teignum og hann þakkaði pent fyrir sig með marki. Undir lok venjulegs leiktíma lagaði miðvörðurinn Hans Viktor Guðmundsson stöðuna fyrir KA með góðu skoti fyrir utan teig en lokatölur 5-2 fyrir Val. Atvik leiksins Þriðja mark Vals sem Tómas Bent Magnússon skorar. Ekki glæsilegasta mark sumarsins en það kom Valsmönnum í tveggja marka forystu þegar leikur KA var að batna og í kjölfarið fylgdu tvö mörk sem kláruðu leikinn endanlega. Stjörnur og skúrkar Adam Ægir Pálsson bæði skoraði og lagði upp í dag og sá um öll föst leikatriði Valsmanna sem skiluðu tveimur mörkum. Í raun var Valsliðið í heild mjög gott en einna helst er hægt að taka Tómas Bent Magnússon, Lúkas Loga Heimisson og Markus Lund Nakkim út fyrir sviga. KA liðið var ekki gott í dag frá aftasta manni til þess fremsta og voru einstaklingsmistök einnig að kosta liðið. Dómarinn Leikurinn gekk sinn gang án mikilla vandræða og Vilhjálmur Alvar á hrós skilið fyrir vel dæmdan leik. Stemning og umgjörð Það var mikil stemning í stúkunni á sunnudaginn þegar Víkingar komu í heimsókn en það var annað uppi á teningnum í dag sem er miður. Engar trommur, söngvar eða neitt slíkt. Hallgrímur Jónasson er þjálfari KA.vísir/Anton „Auðvitað hef ég áhyggjur ef við töpum 5-2 á heimavelli“ Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, segir Val hafa farið með sanngjarnan sigur á hólmi og segir jafnframt framistöðu síns liðs ekki hafa verið eins góða og í undanförnum leikjum. Hvað fór úrskeiðis í dag? „Það var frekar margt. Mér fannst við byrja leikinn fínt en svo gefum við mark snemma í fyrri hálfleik og fáum svo á okkur, ég held það sé sjálfsmark eftir horn, mér finnst það bara slá okkur svolítið utan undir. Við urðum stressaðir á boltann, menn voru leggja sig fram en það var bara eins og menn urðu slegnir og vantaði mikil gæði hjá okkur. Síðan fáum við líflínu, skorum hérna flott mark og förum inn í hálfleik mjög sanngjarnt bara 2-1 undir, hefðum getða fengið fjögur mörk á okkur held ég. Þá svona kemur smá kraftur í okkur, við vorum að pressa og markmaðurinn þeirra ver frábærlega hérna frá Jóan (Símun Edmundsson), hann átti góðan leik markmaðurinn hjá þeim, og síðan í lokin gefum við mjög ódýr mörk þannig Valur vann bara sanngjarnt í dag.“ Fannst þér strákarnir ekki fylgja leikplaninu í dag? Jú, þetta snýst ekki um það. Þetta snýst um að við vorum slegnir í byrjun og Valur gerði vel þannig menn voru að leggja sig fram en mér fannst vanta meiri ró og vanta kannski að ná að vinna betur saman eftir erfiða byrjun en við skorum tvö mörk sem er gott, við höfum ekki skorað í smá tíma þannig það er svona það jákvæða sem ég tek og bara að menn héldu áfram skilurðu, en leikurinn tapaðist bara sanngjarnt gegn góðu liði Vals.“ KA hefur gengið illa að skora á tímabilinu en fengu á sig fimm mörk í dag þrátt fyrir að skora tvö. Liðið er í fallsæti og hefur Hallgrímur áhyggjur af stöðu liðsins. „Já, auðvitað hef ég áhyggjur ef við töpum 5-2 á heimavelli. Við erum búnir að vera með virkilega flottar frammistöður fimm, sex leiki í röð, þetta var ekki nógu góð frammistaða í dag þannig við þurfum bara að gera betur, það er ekki flókið.“ „Bara vera sjálfir eins og við vorum fyrir stuttu síðan, við þurfum bara að gera betur, það er ekki flókið, við þekkjum taktíkina og vitum nákvæmlega hvað við ætlum að gera en við bara náðum ekki að gera það í dag og held því miður að byrjunin hafi slegið okkur út af laginu“, sagði Hallgrímur að lokum aðspurður hvað væri lykiliþáttur í að snúa gengi liðsins við. Tómas Bent Magnússon var að skora í öðrum leiknum í röð.Vísir/Pawel „Búnir að sýna að við séum í hörku standi” Tómas Bent Magnússon, leikmaður Vals, var glaður í bragði eftir 5-2 útisigur á KA þar sem hann komst sjálfur á blað annan leikinn í röð. „Bara frábærlega. Gott að koma norður, erfiður útivöllur, og taka þrjú stig.“ Valur var betri aðilinn stærstan hluta leiksins en Tómas segir leikinn þó ekki hafa verið auðveldan. „Ekkert auðveldara en ég bjóst við, við þurftum alltaf að leggja okkur fram en þú veist, þetta var bara hörku leikur en við vorum aðeins yfir í pressunni og seinni boltunum.“ Tómas skoraði á móti KR í síðasta leik og aftur í dag og er því þokkalega sáttur með sína persónulegu frammistöðu. „Mér líður bara vel, eftir langt og gott frí.“ Tómas fékk að líta gula spjaldið eftir tæpar tvær mínútur þegar hann reif Hallgrím Mar niður í skyndisókn og spilaði því allan leikinn á miðjunni á gulu spjaldi sem getur reynst þrautin þyngri. „Nei, ég segi það nú ekki, en ég þurfti bara að passa mig“, sagði Tómas aðspurður hvort hann hafi viljað hafa leikinn aðeins flóknari með því að næla sér í gula spjaldið strax í byrjun. „Bara gott, það er þétt prógram núna, þrír dagar alltaf á milli leikja, og við erum alveg búnir að sýna það að við séum í hörku standi, þannig þetta er hörku hópur“, sagði Tómas um standið á liðinu. Valur hefur unnið 5 af síðustu 6 leikjum sínum í deildinni og var Tómas ekki með neina flókna útskýringu á góðu gengi liðsins: „Bara góður andi og menn klárir í að berjast, ég myndi segja að það sé bara aðalatriðið sko.“ Besta deild karla Valur KA