Töfrar frá Tony Parker í sterkum sigri Spurs | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. janúar 2017 07:00
San Antonio Spurs vann gríðarlega sannfærandi heimasigur á einu allra besta liði austurdeildarinnar, Toronto Raptors, 110-82, þegar liðin mættust í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Spurs-liðið varðist mjög vel í leiknum en aldrei áður á leiktíðinni hefur Toronto skorað svona lítið í einum leik. Kyle Lowry, leikstjórnandi Raptors, sem hefur verið sjóðheitur undanfarið skoraði aðeins sex stig og brenndi af öllum sjö þriggja stiga skotum sínum. Kawhi Leonard var stigahæstur Spurs með 25 stig auk þess sem hann tók fjögur fráköst en kraftframherjinn LaMarcus Aldridge spilaði frábærlega og skoraði 23 stig auk þess sem hann tók átta fráköst og gaf sex stoðsendingar. Tony Parker, leikstjórnandi San Antonio, minnti heldur betur á gamla tíma þegar hann gaf geggjaða stoðsendingu á Leonard í öðrum leikhluta án þess að horfa en þessi tilþrif má sjá í spilaranum hér að ofan. Boston Celtic er búið að vinna tvo leiki í röð og er áfram í þriðja sæti austurdeildarinnar en það lagði Utah Jazz, 115-104, á heimavelli sínum í nótt. Isaiah Thomas átti stjörnuleik fyrir heimamenn en hann skoraði 29 stig og gaf fimmtán stoðsendingar sem er persónulegt met hjá honum.Úrslit næturinnar: Philadelphia 76ers - Minnesota Timberwolves 93-91 Boston Celtics - Utah Jazz 115-104 Detroit Pistons - Indiana Pacers 116-121 Dallas Mavericks - Washington Wizards 113-105 San Antonio Spurs - Toronto Raptors 110-82 Denver Nuggets - Sacramento Kings 113-120 Phoenix Suns - Miami Heat 99-90 LA Lakers - Memphis Grizzlies 116-102
NBA Mest lesið The Athletic valdi íslensku treyjuna þá ljótustu á EM í ár Fótbolti Kemur til varnar Arnari bróður sínum: „Nú er nóg komið“ Sport Portúgalinn Pedro Neto má taka sér frí: „Hann er mjög leiður“ Fótbolti Arnar hélt sér á brautinni í hálfmaraþoninu Sport Yfirlýsing Ármanns vegna brottvísunar Arnars Péturs: Hann stytti sér leið Sport Sjáðu þegar stelpurnar hittu Höllu forseta Fótbolti Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Körfubolti Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Handbolti Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Enski boltinn Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Enski boltinn Fleiri fréttir Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Sjá meira