Klay fær flest skot hjá Golden State en ekki Curry eða Durant Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2017 16:15 Stephen Curry og Kevin Durant. Vísir/Getty
Lið Golden State Warriors er með besta árangurinn í NBA-deildinni enda einstaklega vel mannað lið. Það er nóg af frábærum leikmönnum sem allir þurfa sín skot. Stephen Curry hefur verið kosinn bestur undanfarin tvö tímabil, Kevin Durant hefur bæði verið stigahæstur og kosinn bestur í deildinni, Draymond Green gælir reglulega við þrennur og Klay Thompson á að baki 60 stiga leik í NBA-deildinni í vetur. Kevin Durant er með 25,8 stig og 4,7 stoðsendingar að meðaltali í leik, Stephen Curry er með 24,2 stig og 4,8 stoðsendingar í leik og meðaltöl Klay Thompson eru upp á 21.5 stig og 2,0 stoðsendingar í leik. Draymond Green er síðan með 10,9 stig, 8,6 fráköst og 7,6 stoðsendingar að meðaltali í leik. Tölfræðingar ESPN tóku það saman hverjir eru að taka flest skot þegar allar fjórar stórstjörnur Golden State liðsins eru saman inn á vellinum. Flestir hefðu eflaust búist við því að það séu annaðhvort Stephen Curry eða Kevin Durant sem eru að fá flest skot en það er ekki svo. Þegar allir fjórir eru inn á vellinum í einum þá er það Klay Thompson sem hefur tekið flest skot það sem af er tímabilinu. Klay Thompson hefur tekið 18 fleiri skot en Kevin Durant og 59 fleiri skot en Stephen Curry. Draymond Green tekur langfæst skot af þeim er líka með langflestar stoðsendingar af þessum fjórum. Kevin Durant er með langbestu nýtinguna af þeim fjórum (54 prósent) en Klay er að nýta 47 prósent skota sinna, Curry er með 46 prósent nýtingu og Green nýtir 45 prósent skota sinna.When all four of the @warriors All-Stars share the floor, neither Stephen Curry or Kevin Durant has taken the most shots. pic.twitter.com/PQj4cFTNHn— ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) January 5, 2017
NBA Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Íslenski boltinn Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Búið að slá markametið á HM í fótbolta Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira