Fjórtánda þrenna Westbrooks kom í sigri á Boston | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. desember 2016 10:04 Russell Westbrook átti frábæran leik gegn Boston. vísir/afp
Fjórtán leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Russell Westbrook fór hamförum þegar Oklahoma City Thunder bar sigurorð af Boston Celtics á útivelli, 112-117. Westbrook var stigahæstur á vellinum með 45 stig en hann tók einnig 11 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Þetta var þriðji leikurinn í röð þar sem Westbrook skorar 40 stig eða meira og fjórtándi leikurinn í vetur þar sem hann er með þrefalda tvennu. Isiah Thomas var atkvæðamestur í liði Boston með 34 stig og 10 stoðsendingar. Golden State Warriors vann sinn sjöunda leik í röð þegar liðið sótti Detroit Pistons heim. Lokatölur 113-119, Golden State í vil. Kevin Durant lenti í villuvandræðum en skoraði samt 32 stig fyrir Golden State sem er á toppnum í Vesturdeildinni. Stephen Curry skoraði 25 stig og gaf átta stoðsendingar og þá kom JaVale McGee með mikilvægt framlag af bekknum. Miðherjinn skoraði 15 stig á aðeins níu mínútum. Cleveland Cavaliers átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Brooklyn Nets að velli. Cleveland var 41 stigi yfir fyrir lokafjórðunginn, 98-57, en Brooklyn bjargaði andlitinu með því að vinna hann 42-21. Á endanum munaði 20 stigum á liðunum, 119-99. Sjö leikmenn Cleveland skoruðu 11 stig eða meira í leiknum. LeBron James var þeirra stigahæstur með 19 stig.Úrslitin í nótt: Boston 112-117 Oklahoma Detroit 113-119 Golden State Cleveland 119-99 Brooklyn Charlotte 103-91 Chicago Orlando 109-90 LA Lakers Milwaukee 123-96 Washington Memphis 115-109 Houston New Orleans 91-87 Miami Minnesota 105-109 Sacramento Denver 108-109 Atlanta Utah 98-104 Toronto Phoenix 123-116 Philadelphia Portland 90-110 San Antonio LA Clippers 88-90 Dallas
NBA Mest lesið Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti AC Milan kaupir Ramos fyrir metfé Fótbolti Búið að slá markametið á HM í fótbolta Fótbolti Hleypur í óvenjulegum aðstæðum: „Rosalegur hiti hérna“ Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira